Utankjörfundaraðsókn á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki dregist saman þrátt fyrir að kosið sé í Kópavogi. Sýslumaður svarar gagnrýni borgarráðs og segir það ekki hafa áhrif að einungis sé hægt að greiða atkvæði á einum stað.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir sveitarstjórnarkosningar hófst 17. apríl og íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta greitt atkvæði í Hlíðarsmára 1 í Kópavogi.
Borgarráð hefur gert athugasemdir við ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að Reykvíkingar geti einungis greitt utankjörfundaratkvæði á einum stað og að sá staður sé ekki í Reykjavík.
„Við síðustu sveitarstjórnarkosningar hefur verið lögð áhersla á að kjósendur í Reykjavík geti greitt atkvæði utan kjörfundar í sveitarfélaginu sjálfu en nú verður það ekki í boði,“ segir meðal annars í bréfi skrifstofu borgarstjórnar.
Segir ákvörðunina ekki skerða aðgengi
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir að í undanförnum kosningum hafi sýslumaðurinn boðið upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. Því sé engin breyting þar á.
„Við fundum ekkert húsnæði laust á höfuðborgarsvæðinu annað en þetta. Við höfum verið í undanförnum kosningum frá 2022 þá höfum við verið í Holtagörðum. Það var ekkert laust þar. Við leituðum einnig til Reykjavíkurborgar hvort þeir væru með húsnæði sem gæti hentað. Það var því miður ekki og ekki heldur hjá Ríkiseignum eða hjá fasteignafélögunum sem eru að reka leiguhúsnæði hér á höfuðborgarsvæðinu.“
Að mati borgarráðs skerðir ákvörðunin aðgengi kjósenda á tímum þar sem kjörsókn hefur dregist saman. Sigríður segir aðgengi og samgöngur góðar í Hlíðarsmára.
„Þetta er alveg afmarkað rými, stórt og fínt á jarðhæð hússins. Það er gengið inn fyrir neðan húsið og þar eru sérmerkt bílastæði fyrir kjósendur utan kjörfundar.“
Sigríður segir biðraðir ekki hafa myndast fram til þessa og engin vandræði komið upp. Hún bætir því við að kjörsókn hafi heldur ekki dregist saman – þvert á móti hafi fleiri atkvæði verið greidd utan kjörfundar í aðdraganda kosninganna í ár og jafn mörgum dögum fyrir kosningar árið 2022.
Í dag hafa um 4.300 atkvæði verið greidd utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu. Greidd atkvæði utan kjörfundar í heild eru um sjö þúsund og tvö hundruð.
„Við teljum ekki ástæðu til þess að endurskoða það eða færa okkur til fram að kosningum. Teljum að þetta muni ganga vel hér hjá okkur í Hlíðarsmára 1.“