„Ég man ekki eftir einhverju ákveðnu tilviki en þetta hefur alveg gerst. Þarna virðist þetta gerast í krítískum fasa flugsins; í aðflugi. Það eru alveg til tilvik þar sem annar flugmaðurinn dettur út einhverra hluta vegna. Þetta eru tvær manneskjur sem fljúga og á meðan það er þá getur alltaf eitthvað svona mannlegt komið upp á.“
Þetta segir Jóhannes Bjarni Guðmundsson, flugmaður hjá Icelandair, um atvik sem varð í gærmorgun um borð í vél EasyJet en flugmaður farþegaþotunnar fékk aðsvif skömmu fyrir lendingu. Flugstjórinn lenti vélinni örugglega en kalla varð til viðbragðsaðila á vettvang.
Jóhannes Bjarni ræddi við blaðamann mbl.is í rútu á leið til Keflavíkur á leið í flug til Toronto. Hann er einnig formaður öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og heldur úti hlaðvarpinu Flugvarpið, þar sem fjallað er um flugmál á Íslandi.
Þekkt í bransanum
Flugmaðurinn segir ýmsar varúðarráðstafanir gerðar til að lágmarka eftirköst í svona tilvikum. Þetta sé að minnsta kosti reglulega æft hjá Icelandair.
Þá eru flugmenn látnir æfa það í flughermi þegar svipaðar aðstæður myndast og flugstjóri eða flugmaður dettur út, ef svo má að orði komast.
„Þá þarf flugmaðurinn að klára dæmið, hvort sem hann er í aðflugi eða farflugi í mikilli hæð og þarf að fara á næsta flugvöll eða eitthvað slíkt,“ segir Jóhannes. Hann segir áhafnarmeðlimi líka vera undirbúna fyrir þessar aðstæður.
Ríkar heilbrigðiskröfur til flugmanna
„Það er ástæða fyrir því að ríkar heilbrigðiskröfur eru gerðar til þessarar stéttar. Flugmenn þurfa að fara í reglulega skoðun sem er bara mjög gott á alla lund. Ábyrgð manna er líka mikil; að mæta vel hæfir og úthvíldir í svona. Auðvitað getur svona alltaf gerst.“
Þetta er eitthvað sem sé þekkt í bransanum. Það geti komið sér vel að það séu þarna tveir.
„Ég man alveg eftir atvikum þar sem menn hafa, já, ekki lognast út af, en verið tæplega vinnufærir vegna þess að þeir hafa fengið matareitrun.
Það er til dæmis ástæðan fyrir því að okkur er uppálagt að borða ekki sama matinn um borð. Það eru ákveðnar reglur um það út af þessu nákvæmlega.“

