Einn lést í alvarlegu umferðarslysi á Þrengslavegi

Mynd: Shutterstock
Einn lést og annar var fluttur á Landspítala eftir alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells seint í gærkvöldi.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um slysið skömmu fyrir klukkan 23. Bifreið hafði þá hafnað út af veginum og oltið.
Tveir voru í bílnum. Annar þeirra var líflaus þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Hinn var fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá rannsóknadeild lögreglunnar á Suðurlandi og Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Lögreglan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.