Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka eftir árekstur tveggja bíla í Ártúnsbrekku við Sprengisand í dag.
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir slysið ekki hafa verið alvarlegt.
Tveir bílar hafi rekist saman með þeim hætti að annar keyrði aftan á hinn.