Að minnsta kosti einn var drepinn og 20 eru særðir eftir miklar árásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Rússar hafa meðal annars gert árásir með flugskeytum og drónum. Úkraínsk stjórnvöld og bandaríska sendiráðið höfðu varað íbúa við hugsanlegum árásum og enn er íbúum ráðlagt að halda sig í loftvarnarbyrgjum.
Stjórnvöld í Moskvu segja að úkraínski herinn hafi drepið 18 almenna borgara á stúdentagörðum aðfaranótt föstudags í Starobilsk. Þá eru 42 sagðir særðir. Úkraínski herinn hefur neitað því að hafa gert árás á almenna borgara og segir árásina hafa verið á hernaðarlega innviði.
Pútín sagði í gær að hann hefði beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar árásir til að hefna árásanna í Starobilsk.
Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem allar árásir á almenna borgara og borgaralega innviði eru fordæmdar. Þá kom fram að ekki væri hægt staðfesta upplýsingar um mannfall vegna takmarkaðs aðgangs sem Sameinuðu þjóðirnar hafa að svæðinu, en Lugansk-hérað tilheyrir Úkraínu en er hernumið að miklu leyti af Rússum.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og særðra.