Egill Eðvarsson, myndlistarmaður og leikstjóri, minnist Gunnars í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Þegar ég, smá putti, spurði afa eitt sinn hvað honum fyndist að ég ætti að verða þegar ég yrði stór, svaraði hann. Það skiptir engu hvað þú verður, drengur minn. Þú verður bara að gera gagn. Gagnast landi og þjóð. Afi var hörkuduglegur verkamaður alla sína ævi, náði 100 ára aldri og gerði gagn,“ skrifar Egill.
„Í gær kvaddi þessa veraldlegu tilvist okkar einn minn tryggasti vinur til 55 ára, Gunnar Þórðarson, hljómlistarmaður og tónskáld. Og Gunni var einn þeirra sem svo sannarlega gerði gagn. Einhver fjölhæfasti tónlistarmaður, sem þjóðin hefur nokkru sinni eignast, atorkusamur verkmaður í höll tónlistargyðjunnar, sem skilur eftir sig ógrynni af glitrandi tónlistarperlum, tónlistargulli og gersemum, sem munu lifa með þjóðinni um ókominn tíma… gagnast okkur öllum og gleðja svo um munar.
Takk, elsku vinur, fyrir allt og allt. Tónlistina, samstarfið, vináttuna og væntumþykjuna. Þú varst mér sönn fyrirmynd. Maður sem kunni til verka… og gerðir gagn!“
Góðan daginn.
Gunnar Þórðarson var einn ástsælasti og afkastamesti tónlistarmaður og lagahöfundur landsins. Í þessari frétt er stiklað á stóru og farið yfir margt áhugavert frá þeim fjölmörgu áratugum sem hann kom að íslenskri tónlist.
Í fréttinni er einnig að finna heimildarmyndina Tónskáldið eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson. Heimildarmyndin er í tveimur hlutum og fjallar um ævintýralegan feril Gunnars.
Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og ætla að fara yfir ýmislegt áhugavert úr ævi Gunnars í þessari fréttavakt í dag. Einnig munu rata hingað viðbrögð landsmanna við andláti Gunnars.