„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ - Vísir

„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ - Vísir

„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ - Vísir

„Ég festist sjaldan lengi í sömu vinnu og ég er svolítið út um allt bara. Mig langar að verða listakona, ég elska að skapa,“ segir Mekkín og sköpunargleðin flæðir heldur betur út í fatastíl hennar.

Mekkín er viðmælandi í Tískutali.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Að fá að tjá mig hvernig sem mér sýnist og geta tekið hamskiptum yfir í hvað sem ég vil. Enginn getur tekið það frá mér, ég elska að vera algjörlega ég. Ég dýrka að vera mikill karakter og mér leiðist að vera eins og aðrir. 

Mér hefur alltaf liðið öðruvísi, er smá skrítin og ég laðast svolítið að því sem er skrítið. Ég er í raun bara álfastelpa í mínum ævintýraheimi og mig langar að klæðaburður minn líti út eins og ég hafi bara hoppað úr teiknimyndasögu. Ég vildi án djóks að ég væri teiknimynduð.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég á ótrúlega fallegan kjól sem að amma mín Unnur saumaði. Hún var alltaf glæsileg, svo yfirveguð og glæsileg. Kjóllinn er kremhvítur með ísaumuðum blómum og stjörnum yfir barminn. Mamma fermdist í honum og ég líka. 

Ég nota hann aldrei en þetta er án efa dýrmætasta flíkin mín, gerð af ást og hefur sögu sem er mjög náin manni. Ég myndi ekki einu sinni skipta honum út fyrir Birkin tösku frá Hermés. Svo elska ég mínípilsið mitt sem er úr dökkbláu gallaefni.

Mínípilsið er meðal uppáhalds flíka Mekkínar.Aðsend

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Já, kannski einum of stundum. Það er bara svo gaman að ég gleymi mér og hef mikið að velja úr, þetta er smá eins og vera í búningaleik. Ef það er eitthvað sem ég þarf að gera, í raun sama hvað, það getur verið að mæta próf, þá eyði ég alltaf tímanum frekar að gera mig til. Mér gengur alltaf vel þegar ég gef mér tíma í mig því þá er orkan mín svo sterk.

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Það er smá erfitt, ég fýla bara allt sem mér finnst sætt. Ég elska fylgihluti sem eru skemmtilegir. Ég á fullt af bull-eyrnalokkum og slaufum og dóti sem ég nota. Er skrítið að segja að stílinn minn sé bara geggjað mikið Mekkín? 

Ég elska stundum að vera mega stelpuleg í öllu bleiku og krúttlegu en ég fíla líka svona aðeins dimmari stílhreinar víbrur. Mér finnst langskemmtilegast að klæðast pilsum við háa sokka og fönkí háa hæla.

Mekkín elskar háa hæla.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Já algjörlega. Ég hef alltaf klætt mig eins og mér sýnist og þegar að ég var barn gat það orðið frekar skrautlegt, sérstaklega með mömmu sem styður mann alltaf sama hvað.

Ég var alveg rosaleg, vildi rokka alla liti alltaf, risa prjónapeysur með myndum og skærum litum með rosalegu mynstri. Ekki láta mig byrja á jegginsunum, ég átti svoleiðis í ljónamynstri. Ég var mikið í kynhlutlausum fötum og mig langaði ekkert til að vera skvísa fyrr en töluvert seinna. Ég rakaði líka af mér allt hár þegar ég var tólf ára bara af því ég gat það og ég vildi einstök föt sem voru bara mín. 

Núna er ég orðin eldri og aðeins meira gelluleg og skipulögð í fatavali. Mér hefur samt alltaf þótt gaman að vera ögrandi, ég geri það bara á annan hátt í dag. Ég er svo glöð að mér leið nógu vel og ég var nógu frjáls til að finna mig. Sérstaklega þar sem ég ólst upp í litlum bæ þar sem allir voru eins klæddir. Það er alltaf fasti hjá mér að vera einstök og skrautleg.

Mekkín hefur alla tíð verið einstök og skrautleg í fatavali.Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Já það er eiginlega bara heilagt og eins konar helgisiður fyrir mér. Mér finnst ég vera að gefa sjálfri mér svo mikið og það veitir mér svo mikla gleði. Ég er oft að leika mér að máta föt heima og leyfa mér að dagdreyma, svo hjálpar hvað ég er ímyndunarveik.

Mekkín elskar fátt meira en að klæða sig upp.Aðsend

Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði?

Að allt sé vel sett saman og flíkin sem ég klæðist veiti mér einhverja hamingju. Ef ég er í fötum sem endurspegla mig ekki nægilega vel þá verð ég bara óþægileg og nýt mín ekki jafn mikið. Svo eru það auðvitað hælaskórnir, ég verð alltaf að vera í flottum hælum.

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Smá alls staðar að held ég. Ég sækist ekkert sérstaklega í innblásturinn þannig, ég fæ hann bara frá lífinu. Svo teikna ég stundum gellu-karaktera og elska að setja þær í sturluð föt og fæ hugmyndir út frá því. 

Bíómyndir og bækur geta líka veitt mér innblástur, sérstaklega frá sixtís tímabilinu og svona retro futuristic stíll. Ég elska tískugoðsagnir eins og Marilyn Monroe og ömmu mína en ég reyni samt ekki að líta út eins og þær, þær fylgja mér kannski frekar.

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Þegar fólk hefur ekki alveg tilfinningu fyrir stíl og dæma aðra fyrir það að vera öðruvísi en klæðast svo því sama sumarið eftir, þegar trendið er alveg löngu búið. Svo hjólagallar, ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir.

Mekkín er ekki spennt fyrir því að sjá punga út um allt.Aðsend

Áttu eitthvað eftirminnilegt tískuslys og hvernig var það?

Örugglega mjög mörg. Ætli ég verði ekki að segja þegar að ég var körfubolti. Enn í dag skil ég það ekki, ég hef ekki einu sinni dripplað körfubolta og þetta var mjög random. Svo var ég einu sinni með fjólublátt hár og ætlaði að aflita það en ég sver að ég endaði eins og eitthvað sjóskrímsli, var með gula rót og grænt hár.

Ég hélt ég yrði algjörlega grilluð þegar ég mætti í skólann svo var það fyrsta sem skólafélagi sagði við mig: Vá, ég fíla hvað þú gerðir við hárið þitt. Það voru allir bara svo vanir því að ég væri að gera eitthvað skrýtið að ég lét bara eins og ég hefði vísvitandi litað það svona.

Mekkín klæddi sig eitt sinn upp sem körfubolti og skilur ekki afhverju.Aðsend

Spilar álit annarra eitthvað hlutverk í þínu fatavali?

Nei í rauninni ekki, mér er alveg sama hvað öðru fólki finnst um klæðaval mitt. Þau eru bara ekki ég. Auðvitað þykir mér alltaf fallegt að fá hrós, sérstaklega frá vinum mínum sem skilja mig betur og eru sjálf glæsileg. 

Mamma ól mig vel upp og ég hef aldrei spáð í hvað öðrum finnst flott eða ekki, það kemur mér ekkert við. 

Ef þú hefðir reynt að leggja mig í einelti í grunnskóla hefði ég örugglega ekki einu sinni tekið eftir því.
Mekkín ásamt besta vini sínum Úlfi Ísberg. Bæði fara þau eigin leiðir í klæðaburði og kæra sig lítið um álit annarra.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Ég held bleiki afmæliskjólinn minn. Hann er svo mikið æði og ég er eins og bollaköku-prinsessa í honum.

Bleiki afmæliskjóllinn er í uppáhaldi.Aðsend

Hvað finnst þér heitast í tískunni í sumar?

Sætir flip-flop sandalar, bara á gellum samt. Annars finnst mér alltaf gaman að sjá stelpur sem eru öruggar með sig í smá áberandi fötum, til dæmis stuttu pilsi og eða þröngum fötum sem eru sexí. Það krefst hugrekkis í dag að vera sexí og það er eins og það sé rosalega mikill skandall. Ég vildi að stelpur upplifðu sig frjálsari með það. Maður má alveg vera sexí, það þýðir ekkert meira.

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Vertu þú sjálf og finndu þig í fötum sem láta þig finna fyrir sjálfsöryggi. Ekki minnka sjálfa þig til að vera ekki of mikið. Þú ert bara þú einu sinni, þú vilt ekki sjá eftir því. Við erum ung og frjáls, nýtum það á meðan við getum og fögnum fjölbreytileikanum.

Mekkín er sjálfsörugg og klæðir sig eins og hana langar til hverju sinni.Aðsend
#ekki #neina #punga #sjá #vil

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923271d/-eg-vil-ekki-sja-neina-punga-takk-fyrir-

📰 Aðrar fréttir

Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir
Eða brúnkukremið. Nú eða ljósabekkina… Það að að vera sólbrún þótti nú samt lengst af ekkert smart. Að minnsta kosti lagði aðallinn í Evrópu það á sig...
Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda - Vísir
Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem bandaríska strandgæslan sendi frá sér en þar kemur einnig fram að skip, þyrlur og flugvélar tækju þátt í leitinni, ...
Grípum til vopna
📅 04.10.2026 👁️ 0
Grípum til vopna
Grípum til vopna Fréttin4. október 2026Aðsend greinLeave a Comment Þröstur Jónsson skrifar. Kristnir í þessu landi sem víðar þurfa að taka sig á og ga...
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana
📅 04.10.2026 👁️ 1
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana
Bandaríkjamenn þurfa að fallast á alla vopnahlésskilmála Íransstjórnar sem fram koma í samningsdrögunum sem gerð voru í Pakistan áður en opnað verður ...
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur - Vísir
Er þetta meðal þeirra 68 mála sem voru skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00. Það gistu í það minnsta þrír í fangageyms...
Brak úr flugvél fannst við Nantucket-eyju
📅 04.10.2026 👁️ 1
Brak úr flugvél fannst við Nantucket-eyju
Björgunarsveitir hafa fundið brak úr flugvél undan ströndum Nantucket-eyju við Massachusetts í Bandaríkjunum.Bandaríska strandgæslan segir að þarna sé...
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að síðdegis muni draga eitthvað úr bæði vindi...
Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 0
Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir
Í dag er Davíð 21 árs og vinnur að þróun á snjallforriti sem ætlað er fólki sem glímir við spilafíkn. Ekki síst ungu fólki sem á erfitt með að stíga f...
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna Ág­úst Lín­dal Ág­ústs­son varð mátt­laus í hálfu and­lit­inu eft­ir með­ferð gegn fjórða stigs krab...
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — einnig viðbúnaður í Kópavogi
📅 04.10.2026 👁️ 3
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — einnig viðbúnaður í Kópavogi
Lögreglumenn brugðust við tilkynningu manns í úthverfi sem óttaðist að annar sæti um sig vegna óuppgerðra mála og sögðu þeim grunaða að hætta og hypja...
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — viðbúnaður í Kópavogi

Australia investigating Flydubai co-pilot's links to country
📅 04.10.2026 👁️ 2
Australia investigating Flydubai co-pilot's links to country
State police and the country's security agency are looking into the co-pilot, who attempted to take control of a Flydubai plane travelling to Israel.
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn
📅 04.10.2026 👁️ 2
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn
Friedrich Merz Þýskalandskanslari er kominn til Kyiv að eigin sögn til að árétta áframhaldandi stuðning við úkraínsk stjórnvöld í innrásarstríði Rússa...
Krakkatía vikunnar: Euro­vision, Harry Potter og Mr. Beast - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Euro­vision, Harry Potter og Mr. Beast - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum
Vísindamenn hafa fundið nýja eðlutegund í næstum fimm kílómetra hæð í Andesfjöllum í Perú. Stjórnendur Náttúrusögusafns Háskóla heilags Markúsar í höf...
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
📅 04.10.2026 👁️ 3
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
Polls suggest the election will be a closely run contest between the left-wing incumbent and his right-wing rival.
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
Bandaríska utanríkisráðuneytið vísaði tveimur írönskum erindrekum úr landi, „sparkaði þeim brott“ eins og það er orðað. Þeir höfðu áður hunsað fyrirsk...
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
📅 04.10.2026 👁️ 2
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
Engan sakaði þegar olíuflutningaskip og tvö flutningaskip rákust saman í Valderhaugfirði skammt frá Álasundi í Noregi í nótt. Tvö skipanna eru komin t...
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
📅 04.10.2026 👁️ 2
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
The key policy idea announced by David Lammy when he was justice secretary will no longer go ahead.
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
📅 04.10.2026 👁️ 3
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
Allt útlit er fyrir að miðhægriflokkur forsætisráðherrans Andris Kulbergs hafi unnið sigur í þingkosningum sem haldnar voru í Lettlandi í gær. Þegar y...
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
📅 04.10.2026 👁️ 3
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, segist ekki hafa tekið nægilega hart á hópnauðgun sem framin var í skólanum árið 2024. Kotl...
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
📅 04.10.2026 👁️ 3
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
Lots of the stars have worked together, some are good friends - and that can impact the show's dynamics.
When parenting advice becomes too much
📅 04.10.2026 👁️ 3
When parenting advice becomes too much
Many parents feel overwhelmed by the amount of parenting information available
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
📅 04.10.2026 👁️ 3
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
Jarðskjálfti sem fyrstu tölur benda til að hafi verið af stærðinni 3,8 reið yfir austur af Brennisteinsfjöllum klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nó...
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, ...
Höfuð­borgar­svæðið skalf - Vísir

UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
📅 04.10.2026 👁️ 3
UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
After highs of 28C in the final week of September, cooler air will arrive this week with temperatures falling closer to the seasonal norm.
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fyl...
Afar mjótt á munum milli Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum

'Another tax bombshell?' and 'Terror plot targets'
📅 03.10.2026 👁️ 1
'Another tax bombshell?' and 'Terror plot targets'
Several of today's papers feature Andy Burnham's latest plans as PM, including experts warning of a potential tax rise to help cover his social care p...
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
Hin 51 árs Hammond stýrir þættinum This Morning á bresku stöðinni ITV en í þætti gærmorguns virtist hún skyndilega halda um brjóstið á sér á meðan með...
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
📅 03.10.2026 👁️ 2
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
Michael Kotlikoff described the allegations of a woman who says she was drugged and gang raped as "deeply disturbing".
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
📅 03.10.2026 👁️ 3
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
Lögreglan er með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi. Fréttastofu barst ábending um að lögreglubílar væru í götunni en ekki hefur fengist staðf...
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
📅 03.10.2026 👁️ 3
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
Prime Minister Mark Carney has said the military is running scenarios in the unlikely case the US invades Canada.
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Á plakati sem ...
Jarðskjálftar í Kötluöskju
📅 03.10.2026 👁️ 4
Jarðskjálftar í Kötluöskju
Nokkrir jarðskjálftar í kringum 3 að stærð hafa orðið í Kötluöskju í Mýrdalsjökli í kvöld. Einn 3 að stærð varð klukkan 21:44. Bjarki Kaldalóns Friis,...
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
Ísraelsher segist hafa gert loftárás á Gaza í dag gegn leiðtoga Hamas, Ali al-Amoudi. Yfirvöld á Gaza segja fimm hafa verið drepna í árásinni. Ísraels...
Katla skelfur - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Katla skelfur - Vísir
Bjarki Kaldalóns Friis náttúruvársérfræðingur segir í samtali við Vísi að nokkrir skjálftar hafi mælst í kringum klukkan 21.30 í kvöld. Enn eigi eftir...
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
Lögreglan í finnsku höfuðborginni skrifar í yfirlýsingu að lögreglunni hafi borist tilkynning upp úr klukkan 19 að staðartíma (kl. 16 að íslenskum tím...
England star Jude Bellingham shows he could become "one of the greatest" as he unlocks new level
📅 03.10.2026 👁️ 1
England star Jude Bellingham shows he could become "one of the greatest" as he unlocks new level
Jude Bellingham's international future was being called into question a year ago, but now he is regarded as potentially one of England's "greatest of ...
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
📅 03.10.2026 👁️ 5
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
Í 28 fjöldahjálparkerrum víðs vegar um landið er allt það helsta sem þarf til að opna fjöldahjálparstöð, til dæmis beddar, teppi, skyndihjálparbúnaður...
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
📅 03.10.2026 👁️ 5
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
Party leader Kemi Badenoch tells the BBC that she wants to see "people who work harder" not getting punished for doing so.
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu le...
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýkjörnum formanni. Salma, sem er 27 ára, hefur setið í stjórn hreyfingarinnar um nokkurt skeið en hún tekur nú við...
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
📅 03.10.2026 👁️ 2
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
Geraint Anderson says some modern workplaces reward psychopathic traits.
Sameinast um góð mál
📅 03.10.2026 👁️ 5
Sameinast um góð mál
Sameinast um góð mál Fréttin3. október 2026Geir Ágústsson, Innlent, PistlarLeave a Comment Borgarstjórn Reykjavíkur. Geir Ágústsson skrifar: Tillaga M...
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð
📅 03.10.2026 👁️ 5
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð Fréttin3. október 2026Erlent, Innlent, Jón Magnússon, PistlarLeave a Comment Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður. Jón ...
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
📅 03.10.2026 👁️ 4
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti fru...
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
Aðgerðum lögreglunnar á Austurlandi á Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á Austurlandi er lokið. Hópslysaáætlun var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag eftir fj...
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
📅 03.10.2026 👁️ 5
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
Ný ritrýnd rannsókn á rottum sýnir minni heilabjúg, minna magn óeðlilegs tau-próteins og breytingar á tengingum heilans eftir gjöf psilocybins. Vísind...