„Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ - Vísir

„Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ - Vísir

„Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ - Vísir

Fyrstu árin eftir útskrift starfaði Friðrik á Grensásdeild Landspítalans.

„Ég byrjaði á Grensás strax eftir útskrift og fékk að vinna með frábæru fólki þar, bæði öðrum sjúkraþjálfurum og sjúklingum sem ég fékk að hjálpa í gegnum virkilega erfiða tíma og endurhæfingu,“ segir Friðrik.

Á deildinni mætir fólk sem hefur lent í erfiðum veikindum eða slysum og eiga fyrir höndum langa og stranga endurhæfingu.

Friðrik ásamt Morgan Gibbs-White á City Ground eftir sigur Nottingham Forest á Arsenal í maí 2023.

Hann segir það hafa verið bæði krefjandi og gefandi að vinna með fólki eftir erfið áföll og slys. Að sjá manneskju sem gat ekki staðið upp úr rúmi ganga heim á eigin fótum breyti því hvernig maður hugsi um fagið og lífið.

„Grensás kenndi mér að árangur er ekki sjálfgefinn. En hann er heldur aldrei eingöngu í höndum sjúkraþjálfarans. Fólkið sem náði mestum árangri lagði mikið á sig á æfingum og hugsaði jákvætt. Það kenndi mér hvaðan árangurinn raunverulega kemur.“

„Árangurinn kemur ekki af bekknum, heldur af fólkinu sjálfu“

Það er algengur misskilningur að sjúkraþjálfun snúist fyrst og fremst um að mæta í tíma, leggjast á bekkinn og láta laga sig. Það sem rannsóknir sýna að skipti mestu máli er virk meðferð og fræðsla.

„Raunverulegur árangur er sjaldnast tilkominn vegna þess sem gerist í meðferðartímanum sjálfum, heldur vegna þess sem fólk gerir sjálft á milli tíma,“ segir Friðrik.

Friðrik Ellert og Magnús Gylfason í sólinni með Rúrik Gíslasyni á HM í Rússlandi. Friðrik fylgdi landsliðinu undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar þegar liðið náði eftirtektarverðum árangri á EM í Frakklandi og vann svo sinn riðil í undankeppni HM og fór í fyrsta sinn á heimsmeistaramót.Vísir/Vilhelm

„Við höfum 30 mínútur með hverjum skjólstæðingi á viku, jafnvel minna. Megnið af tímanum er fólk heima hjá sér, í vinnunni og í daglegu amstri. Þar á endurhæfingin sér raunverulega stað, ekki á stofunni.“

„Það sem ég segi alltaf við fólkið mitt er að það sem skipti mestu máli sé það sem þú gerir þegar þú ert ekki hjá mér. Ég get bent þér á leiðina að árangri en það er þitt að fara hana. Þú þakkar svo sjálfum þér árangurinn, ekki mér.“

„Oft sjúkraþjálfari númer tvö eða þrjú“

Í dag starfar Friðrik hjá Sjúkraþjálfun Íslands og hefur gert síðustu 23 ár. Friðrik tekur oft á móti erfiðum tilfellum og minnist margra skipta þar sem eftirtektarverður árangur hefur náðst með fólk sem hafði gengið illa að ná bata. 

Friðrik á skokki með Gylfa Þór Sigurðsson á HM í Rússlandi.Vísir/Vilhelm

„Ég er oft sjúkraþjálfari númer tvö eða þrjú. En ég lít alls ekki svo á að ég sé betri sjúkraþjálfari en einhver annar. Það sem ég tel mig vera góðan í er að virkja fólk í því sem skiptir mestu máli, að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera æfingarnar sínar.“

„Við erum enn þá að senda fólk heim með blöð“

„Allir sem hafa farið til sjúkraþjálfara þekkja það að vera sendir heim með æfingar og gera þær ekki,“ segir Friðrik. „Flestir fá æfingar á blaði, setja þær í rassvasann og gleyma þeim.“

Hann segir marga sjúkraþjálfara enn þá senda fólk heim með æfingar á blöðum og að sumir séu jafnvel enn þá að teikna æfingar með prikköllum.

Mikill fjöldi geri ekki æfingarnar sínar

Rannsóknir sýni að stór hluti skjólstæðinga, allt að helmingur eða meira, fylgi ekki æfingunum sínum á milli heimsókna.

„Fólk fer heim, gleymir blöðunum og kemur svo aftur eftir viku. Sjúkraþjálfarinn hefur enga innsýn í hvað gerist á milli heimsókna og enga leið til að styðja fólk. Niðurstaðan er verri upplifun og lakari árangur.“

Friðrik segir þetta fyrirkomulag úrelt og að sjúkraþjálfun verði að þróast til að styðja fólk betur á milli tíma.

„Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana.“

Jóhann Berg Guðmundsson og Friðrik Ellert á skokkinu.Vísir/Vilhelm

Með áratuga reynslu í farteskinu fór Friðrik af stað með Euneo, app sem styður skjólstæðinga í gegnum endurhæfinguna og hjálpar sjúkraþjálfurum að fylgja þeim eftir.

„Markmiðið er einfalt: að hjálpa fólki að taka virkan þátt í eigin bata, bæta upplifun þess af sjúkraþjálfun og hjálpa því að ná betri árangri.“

Fólk verði að leggja inn vinnuna

Grunnhugsunin á bak við Euneo byggir á þeirri sannfæringu Friðriks að bataferlið sé ekki eitthvað sem hægt sé að gera fyrir fólk.

„Þú verður að leggja inn vinnuna til að uppskera árangur. Mitt starf er að leiðbeina þér og styðja þig eins vel og ég get en ég get ekki lagt inn vinnuna fyrir þig.“

Euneo heldur utan um æfingaáætlun fólks, minnir það á hana og gerir því kleift að fylgja henni eftir hvar og hvenær sem er. Á sama tíma fær sjúkraþjálfarinn raunverulega innsýn í hvernig gengur milli heimsókna og getur nýtt tímann með fólki betur þegar það mætir í tíma.

Friðrik Ellert ræðir við Birki Bjarnason.vísir/vilhelm

„Það munar svo miklu um að senda fólk ekki bara heim með blað og „gangi þér vel“. Við erum að vinna saman að markmiði. Ég sé hvernig þér gengur og get veitt þér markvissan stuðning. Þetta hefur gjörbreytt því hvernig ég vinn og fólkið mitt er himinlifandi með stuðninginn sem appið veitir þeim.”

„Rúmlega 7.000 manns á biðlista“

Í dag eru rúmlega 7.000 manns á biðlista eftir sjúkraþjálfun á Íslandi og Friðrik segir eftirspurnina aðeins fara vaxandi. Því sé nauðsynlegt að fara að hugsa með nýjum hætti.

„Það eru biðlistar hjá öllum stofum landsins og þeir munu bara lengjast. Við þurfum að finna leiðir til að styðja betur við fólk á einfaldan hátt.“

Hann telur stafrænar lausnir vera lykilinn að því að bæta þjónustu án þess að auka álagið. Reynsla hans er sú að þegar fólk taki virkari þátt á milli tíma nái það betri árangri og þurfi færri komur til sjúkraþjálfara.

„Stafrænar lausnir eru ekki val heldur nauðsynlegur hluti af framtíð heilbrigðiskerfisins.“

Spurður hvar hann sjái sjúkraþjálfun eftir tíu ár er svarið stutt:

„Við sjáum fram á enn lengri biðlista og meira álag. Við verðum því að gera það auðveldara fyrir fólk að taka virkan þátt í eigin meðferð og taka meiri ábyrgð á eigin heilsu.“

Árangurinn farinn að sjást

Euneo hefur þegar unnið til verðlauna á Íslensku vefverðlaununum, meðal annars sem Stafræn lausn ársins og Verkefni ársins. Í dag eru rúmlega 100 sjúkraþjálfarar farnir að nota Euneo í hverjum mánuði og nokkrar af fremstu sjúkraþjálfunarstofum landsins byrjaðar að innleiða lausnina.

Rúmlega þrjú þúsund manns hafa fengið stuðning í gegnum Euneo og í könnun á meðal notenda segja 93% að Euneo hafi bætt upplifun þeirra af sjúkraþjálfun. Friðrik segir þó að mesti árangurinn felist hvorki í verðlaunum né tölfræði.

„Það sem gefur manni mest sem sjúkraþjálfari er að hjálpa fólki að líða betur og komast aftur í það sem það elskar.“

Eftir þrjátíu ár í faginu segir Friðrik að hann hafi lært eitt umfram allt.

„Góður sjúkraþjálfari er ekki sá sem reynir að leysa allt fyrir skjólstæðinginn. Hann er sá sem gefur honum verkfærin og traustið til að gera það sjálfur.“

#get #leiðina #sýnt #árangri #þér


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262879157d/-eg-get-synt-ther-leidina-ad-arangri-en-thad-er-thitt-ad-fara-hana-

📰 Aðrar fréttir

Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
📅 30.06.2026 👁️ 0
Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
Um 95 milljónir Evrópubúa upplifa að minnsta kosti 35 stiga hita í dag, aðallega í austur- og suðurhluta álfunnar. Hitamet féll í Slóvakíu í gær þegar...
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
📅 30.06.2026 👁️ 0
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni Til­kynn­ing­um um kyn­ferð­is­lega áreitni og sta­f­ræn kyn­ferð­is­brot fjölg­a...
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir Ný rannsókn CSPII 2026 á FGM vekur mikilvægar spur...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...