Það er reynt að fá fólk til að láta eins og ekkert sé á meðan þjóðarmorðið heldur áfram á Gaza, segir bresk-egypskur leikari og höfundur sem fjallar um heimsmálin í sýningu á Listahátíð Reykjavíkur.
Khalid Abdalla er líklega þekktastur fyrir leik sinn í Flugdrekahlauparanum. Hann lék líka Dodi Fayed, kærasta Díönu prinsessu, í þáttunum The Crown. Nú sýnir hann einleikinn Nowhere eða Hvergi hér á Íslandi.
„Oft erum við hvött til að segja okkar sögu sem einstaklingar sem komast áfram þrátt fyrir mótlæti,“ Khalid Abdalla, höfundur Nowhere og leikari.
Þessu snýr hann við og spyr frekar hvernig heimurinn sem við lifum í móti okkur. „Ég er leikari af arabískum uppruna. Ég útskrifaðist úr háskóla 2003, árið sem ráðist var inn í Írak og í mínum huga er verið að fremja þjóðarmorð núna. Allt þetta hefur áhrif á mínar ákvarðanir. Ég á börn sem lærðu orðið þjóðarmorð í æsku.“
Athygli heimsins er ekki á Gaza um þessar mundir. Sjálfur hefur Khalid persónuleg tengsl við fólk í Palestínu. „Síðasti mánuður var sá blóðugasti frá því svokallað vopnahlé tók gildi. Ég held að um 150 Palestínumenn hafi verið drepnir. Við vitum að sjö mánaða barn var skotið fyrir um viku eða tíu dögum.“
Hann segir að á meðan þjóðarmorð og ólögleg landtaka haldi áfram sé verið að reyna að fá okkur til að horfa fram hjá því.
„Við erum stöðugt hvött til þess að láta eins og það sem við sjáum sé ekki raunverulegt og ef við tölum um það þá förum við í fangelsi eða verður slaufað. En ég held að við séum að upplifa tíma þar sem vitund fer vaxandi. Á síðustu tveimur og hálfu ári hefur fólk séð hluti og grátið þannig að það mun aldrei gleyma.“
Seinni sýning hans af tveimur er í Tjarnarbíói í kvöld. „Ísland er eitt þeirra ríkja sem hefur gengið til liðs við málsókn Suður-Afríku, sem má líta á sem svo að samstaða ríki hér. Og það er eitthvað sem ég er óendanlega þakklátur fyrir og gerir það sérstakt fyrir mig að flytja leikritið hér.“