Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl, sem fela í sér lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24 prósentum í 11 prósent frá og með 1. maí til og með 31. ágúst. Þá er Samkeppniseftirlitinu með lögunum falið að hafa eftirlit með því að lækkunin skili sér til neytenda.
Í fréttatilkynningu frá eftirlitinu segir að það undirbúi nú eftirlit á grundvelli hinna nýsettu laga. Eftir helgi muni eftirlitið senda eldsneytisfyrirtækjunum bréf þar sem óskað verði tiltekinna upplýsinga sem nauðsynlegar eru.
Jafnframt verði lögð á fyrirtækin reglubundin upplýsingaskylda út tímabilið. Í tengslum við upplýsingaöflunina muni Samkeppniseftirlitið móta nánar hvernig staðið verður að eftirlitinu, þar á meðal hvaða viðmið verði lögð til grundvallar. Seljendum eldsneytis, ásamt þeim sem gæta hagsmuna neytenda eins og ASÍ, FÍB og stjórnvöldum á þessu sviði, gefinn kostur á að tjá sig um tilhögun eftirlits og viðmið sem byggt verður á.