Grunnskólakennari segir það of algengt að foreldrar grunnskólabarna taki börnin úr skóla á miðju skólaári. Fjarvera barna frá skóla bitni bæði á börnunum sjálfum og á kennurum.
Ragnheiður Stephensen, kennari í Garðaskóla í Garðabæ, var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í dag.
Í gær birti Ragnheiður grein á Vísi þar sem hún bendir á ýmislegt sem betur mætti fara í íslenskum skólum. Í greininni segir Ragnheiður meðal annars að margir foreldrar taki skólaskyldu barna sinna ekki nógu alvarlega.
„Það er bara þannig að hér á landi er skólaskylda og ef þú ferð erlendis þá sérðu ekki börn frá öðrum löndum nema það sé formlegt frí í skólum. En á Íslandi máttu ekki hafna leyfi. Þú mátt ekki segja þessi nemandi má ekki við því að missa úr skóla ég get ekki veitt þetta leyfi,“ sagði Ragnhildur.
Hún sagði að búið væri að úrskurða fyrir dómstólum að foreldrar réðu alfarið viðveru barna sinna í skólum, þvert á skólaskyldu.
„Það eru til dæmis ekki til neinar tölur hjá Hagstofunni um ástundun barna í skóla. Það finnst mér alveg ofboðslega ámælisvert þegar það er skólaskylda í landinu.“
Að meðaltali 18 leyfisdagar á einu skólaári
Að sögn Ragnheiðar dró úr því að börn væru fjarverandi frá skóla á tímum covid. Þá hafi fólk hætt að ferðast og ákveðin kyrrð ríkt í skólum.
„Jafnvel þótt við byggjum við þetta covid-ástand vorum við alltaf með nemendurna okkar og þess vegna gengu hlutirnir bara ágætlega þá. En svo kláraðist covid, sem betur fer, og við erum alveg núna á leiðinni aftur á sama toppinn sem við vorum.“
Í Morgunútvarpinu sagði Ragnheiður að í Garðabæ nýtti hvert barn að meðaltali 18 leyfisdaga á einu skólaári. Hún segir það óþægilegt og að fjarveran komi niður á nemendum jafnt sem kennurum.
„Þetta kemur niður á álaginu á kennarana því maður fær bara tölvupóst þar sem kemur fram að nemandi sé að fara út. Hann er að fara út, geturðu tekið saman gögnin fyrir okkur og sagt hvað hann eigi að gera? Svo koma þau jafnvel til baka og eru ekkert búin að gera neitt því við vitum hvernig það er. Ef þú ert á Tene, þá ertu á Tene.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Ragnheiði í Morgunútvarpi Rásar 2 í spilaranum hér að neðan.