Drangar hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Brauð & Co., einu þekktasta handverksbakaríi landsins.Brauð & Co. rekur átta útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu og er ársvelta félagsins rúmlega 1,5 milljarður króna. Félagið skilaði hagnaði á rekstrarárinu 2025 og hefur byggt upp sterka markaðsstöðu með áherslu á framúrskarandi gæði, handverk og einstaka upplifun viðskiptavina. Kaupverðið verður greitt með hlutabréfum í Dröngum og reiðufé eins og segir í fréttatilkynningu.
Drangar kaupa Brauð & co