Hljómsveitin greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum.
„DIMMA snýr nú aftur tvíefld, með nýja liðskipan og nýtt lag sem ber heitið Skarkali!
Lagið er það fyrsta sem heyrist frá DIMMU í 5 ár og gefur hugmynd um hverju fólk má eiga von á frá sveitinni á sjöundu breiðskífu okkar, sem nú er í vinnslu og væntanleg á næsta ári,“ segir í tilkynningu.
Nýjasti meðlimur sveitarinnar er söngvarinn Ivan Mendez sem er ættaður frá Kólombíu og hefur gefið út tónlist undir eigin nafni síðustu ár. Fyrir eru í sveitinni Skúli Gíslason trommuleikari, Silli Geirdal bassaleikari og Ingó Geirdal gítarleikari.
Hægt er að hlusta á nýja lagið, „Skarkala!“, hér að neðan: