Sean „Diddy“ Combs virðist ekki hafa sagt skilið við munaðarlífið þótt hann sitji nú bak við lás og slá. Tónlistarmógúllinn er sagður verja þúsundum dollara á mánuði til að gera lífið í Fort Dix-alríkisfangelsinu í New Jersey eins þægilegt og mögulegt er.NBC News greinir frá þessu og byggir umfjöllun sína á frásögnum fjögurra manna sem hafa dvalið í sömu fangelsisdeild og Combs. Mennirnir ræddu við miðilinn gegn nafnleynd.
Diddy sagður lifa eins og kóngur bak við lás og slá