Fundi samninganefnda Icelandari og Félags íslenskra atvinnuflugmanna lauk á þriðja tímanum í dag. Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari segir að boðað sé til fundar að nýju í fyrramálið.
„Þetta heldur áfram þetta tos.“
Deilan sé enn mjög þung og erfið. Viðræðurnar mjakist ákaflega hægt áfram. Margar tillögur hafi verið settar fram.
„Það eru alls konar tillögur á báða bóga enn það er ekki hægt greina efnislega frá því hverjar þær eru. Ekki á þessum stað.
Aðspurður hvort það hafi verið tekið fyrir að aflýsingar flugferða virðist haldast hönd í hönd við gang viðræðna segist Ástráður ekki getað tjáð sig um efni þess sem hafi verið rætt á fundinum.