Í umræðunni um ESB sem nú er í gangi fer ekki mikið fyrir menningarmálum og hvaða þýðingu aðild gæti haft fyrir íslenska tungu, bókmenntir, listir og menningararf. Í því efni þarf fyrst að hafa í huga að Ísland hefur þegar notið umtalsverðs ávinnings af þátttöku sinni í samstarfi Evrópuþjóða í gegnum EES-samninginn á þessum sviðum. Ávinningur af því samstarfi gefur ástæðu til að ætla að ýmis tækifæri felist í fullri aðild til að styrkja frekar íslenska tungu og menningu.
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: ESB, íslensk tunga og menning