Dagskráin hefst á Austurvelli þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur hátíðarávarpið, annað árið í röð, en þar til síðasta sumar hafði vaninn verið sá að forsætisráðherra flytti ávarpið á athöfninni sem er á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins. Fjallkonan flytur einnig ávarp og Félagar úr Karlakór Reykjavíkur flytja nokkur lög auk blásara úr Sinfoníuhljómsveit Íslands.
Þá mun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra leggja blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða um Jón Sigurðsson á Austurvelli en forseti borgarstjórnar, Björg Magnúsdóttir, mun að athöfn lokinni leggja blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur í Hólavallagarði. Athöfninni verður sjón- og útvarpað á RÚV.
Trylla lýðinn með „þjóðlegu reifi“
Klukkan 13:00 fer svo af stað skrúðganga leidd af Skátunum en hún hefst við Hallgrímskirkju og gengið verður að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði. Á vef Reykjavíkur segir að leynigestir muni slást í hóp þeirra sem þarna ganga en Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir.
Götuleikhús Hins Hússins stendur fyrir margskonar viðburðum sem fara fram víðs vegar um miðborgina. Þar á meðal verður boðið upp á „Þjóðlegt reif“, en hópurinn mun „trylla lýðinn í skrúðgöngunni,“ og þegar í Hljómskálagarð er komið mun áhorfendum vera boðið að dansa og syngja með hópnum.
Í Hljómskálagarði verða hoppukastalar, klifurveggur, skátaþrautabraut og matavagnar svo fátt eitt sé nefnt en á vef Reykjavíkur segir að ókeypis aðgangur verði á alla dagskrárliði og í öll tæki.
Meðlimir hljómsveitarinnar Sprite Zero Klan, Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson, verða skemmtanastjórar á stóra sviðinu.
Hér að neðan má sjá dagskrá á sviði:
Klukkan 13:50 Kynnar Sprite Zero Klan
Klukkan 14:00 Leikhópurinn Lotta
Klukkan 14:30 Dansskóli Birnu Björns
Klukkan14:40 Tónhylur Akademía
Klukkan15:10 Danslistaskóli JSB
Klukkan15:15 Amabadama
Klukkan 15:45 Dansstúdíó World Class
Klukkan 15:50 Páll Óskar
Klukkan16:20 Dans Brynju Péturs
Klukkan 16:40 VÆB
Á milli 13:00 og 17:00 mun Krúserklúbburinn vera með bílasýningu á Skothúsvegi og á milli 14:00 og 17:00 mun Reykjavik HEMA Club setja upp tvo velli til að skylmast á og leika listir sínar. Klukkan 14:30 verður Dans Afríka með trommuslátt og dans í garðinum en klukkan 15:00 tekur Húlladúllan við og leikur listir sínar.
„Hringleikur verður með sirkusatriði á vel völdum stöðum. Listhópar Hins Hússins verða með blöndu af menningarviðburðum í garðinum. Götuleikhús Hins Hússins sýnir listir sínar í Hljómskálagarði,“ er einnig meðal þess sem stendur á vef Reykjavíkur.
Plötusnúðurinn reynslumikill miðað við aldur
Á Klambratúni, Ingólfstorgi og á Árbæjarsafni hefst auglýst dagskrá klukkan 13:00 en á Klambratúni verða matarvagnar Reykjavík Street food og leiktæki. Þar verður danssýning, Besti vinur minn Súperman og plötusnúðar.
Annar plötusnúðanna er hinn tíu ára gamli Baldur Freyr Kristjánsson, DJ BFK, en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið lengi að spila og byrjaði að æfa sig á græjunum aðeins 2 ára gamall. DJ BFK hefur spilað á ýmsum samkomum - svo sem í afmælum, á skóla- og leikskólaskemmtunum og barnahátíðinni Kátt á túni í fyrrasumar þar sem hann lokaði hátíðinni á stóra sviðinu.
Á Ingólfstorgi verður svokallað Streetball mót þar sem tveggja manna lið munu etja kappi í útsláttarkeppni en skráning í mótið fer fram á streetballmotid.is og eru í verðlaun gjafabréf að andvirði ríflega einnar milljónar íslenskra króna.
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður Harmonikufélag Reykjavíkur með alvöru harmonikkuball og þar verður dansað frá klukkan 15:00 til klukkan 16:30. Ókeypis verður inn og nóg af sætum fyrir áheyrendur og gólfpláss fyrir dansara. Á Árbæjarsafni verða þjóðbúningar, þjóðdansar, fjallkonan, fornbílar og harmonikkuleikur. Veitingasala verður í Dillonshúsi og gömlu góðu sleikjóarnir verð á sínum stað í Krambúðinni.
Upplýsingar um aðgengi í miðborginni má finna hér og kort yfir lokanir hér.
Klukkan 13:50 Kynnar Sprite Zero Klan
Klukkan 14:00 Leikhópurinn Lotta
Klukkan 14:30 Dansskóli Birnu Björns
Klukkan14:40 Tónhylur Akademía
Klukkan15:10 Danslistaskóli JSB
Klukkan15:15 Amabadama
Klukkan 15:45 Dansstúdíó World Class
Klukkan 15:50 Páll Óskar
Klukkan16:20 Dans Brynju Péturs
Klukkan 16:40 VÆB