Tanner Horner, sem starfaði sem sendill hjá FedEx, hefur verið dæmdur til dauða í Texas fyrir að hafa rænt og myrt 7 ára stúlku eftir að hafa afhent pakka á heimili hennar.
Dómur eftir langa málsmeðferð
Dómurinn var kveðinn upp á þriðjudag eftir um mánaðarlanga málsmeðferð en Horner játaði á sig morðið áður en réttarhöld hófust.
Stúlkan, Athena Strand, hvarf af heimili sínu í bænum Paradise árið 2022. Lík hennar fannst tveimur dögum síðar.
Kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu að líklegt væri að sakborningurinn myndi fremja frekari ofbeldisbrot og teljast áframhaldandi ógn við samfélagið. Ekkert í bakgrunni hans eða aðstæðum brotsins þótti réttlæta vægari dóm, svo sem lífstíðarfangelsi.
Hrollvekjandi upptökur úr sendibíl
Við réttarhöldin voru lögð fram mynd- og hljóðupptökur úr sendibíl þar sem síðustu stundir stúlkunnar heyrðust. Kviðdómarar brustu í grát þegar upptökurnar voru sýndar.
Á upptökunum sést þegar maðurinn setur stúlkuna inn í bílinn og ekur á brott. Hann segir henni að öskra ekki og spyr hana spurninga, meðal annars um aldur hennar og í hvaða skóla hún gangi. Síðar heyrist hún gráta og spyrja af hverju hann sé að gera þetta.

Rúmlega klukkustundar löng upptakan inniheldur einnig hótanir og öskur áður en allt þagnar skynilega.
Réttarmeinafræðingur staðfesti að dánarorsök hafi verið áverkar af völdum höggs, ásamt köfnun og kyrkingu.
Reyndu að fá mildun vegna erfiðrar æsku
Verjandi mannsins reyndi að færa rök fyrir að dæma Horner í lífstíðarfangelsi vegna erfiðrar æsku og geðraskana, en á endanum varð niðurstaðan dauðadómur.