Stefnumótaþættirnir Love Is Blind njóta gífurlegra vinsælda en þeir eru óhefðbundnir að því leytinu til að keppendur velja sér maka blindandi. Stefnumótin fara þannig fram að kona og karl hittast í sérstökum herbergjum sem nefnast pods en skilrúm er á milli þeirra svo þau geta aðeins talað saman en sjá ekki hvort annað. Takist keppendum að finna sér maka þá trúlofast pörin og fá þá fyrst að hitta hvort annað. Síðan fá þau smá tíma til að kynnast, prófa að búa saman og hitta fjölskyldur hvors annars og ákveða svo hvort þau segi já þegar upp að altarinu er komið.
Dæmdur í fangelsi fyrir að reyna að myrða konuna sem hann giftist í raunveruleikaþáttunum Love Is Blind