Áform Isavia um að reisa 200 til 400 herbergja hótel á Keflavíkurflugvelli falla ekki vel að framtíðarsýn ferðaþjónustu á Reykjanesskaga.
Þetta segir Steinþór Jónsson, eigandi Hótel Keflavíkur, í samtali við mbl.is.
Áformin hafa vakið furðu meðal fulltrúa Reykjanesbæjar en Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs bæjarins, velti því upp á fundi í síðasta mánuði hvort Isavia væri komið út fyrir starfssvið sitt með uppbyggingunni.
Margt annað sem þegar vantar við flugstöðina
Steinþór á þó ekki endilega von á því að Isavia láti verða af áformunum.
„Þetta er ekki eitthvað sem hentar framtíðarsýn ferðaþjónustu á Reykjanesi, þar sem við erum að reyna að ná ferðamönnum til okkar í samfélögin bæði í kringum Bláa lónið og Reykjanesbæ sem og aðra bæi á Reykjanesi.“
Telur hann að Isavia hljóti að forgangsraða öðrum hlutum yfir það að reisa hótel ef efla á þjónustu á Keflavíkurflugvelli.
„Það er margt annað sem vantar í þjónustu við flugstöðina, samanber bara aðkomu við flugstöðina varðandi brottfararfarþega og varðandi bílaleigur og fleira. Ég sé ekki fyrir mér að þeir geti látið verða af þessu.“
Fagnar viðbrögðum bæjarins
Steinþór hefur rekið Hótel Keflavík frá árinu 1986. Hann segir ferðaþjónustuna á svæðinu hafa byggt upp fjölda hótela sem anni nú eftirspurn eftir gistingu vel og því séu áform Isavia um að reisa risahótel einfaldlega ekki tímabær.
Steinþór tekur undir með fyrrnefndum Halldóri um að Isavia sé með uppbyggingunni að fara út fyrir starfssvið sitt.
„Ég tek undir það og það er gott að vita að við búum í bæjarfélagi sem er annt um fyrirtækin sem eru fyrir í bæjarfélaginu. Ég get ekki annað en fagnað því að það sé verið að hugsa um hag bæjarbúa og þeirra sem hafa byggt upp ferðaþjónustuna.“
