Þetta kemur fram í svari Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra við fyrirspurn fréttastofu.
Fréttastofa sendi erindi á fangelsismálastjóra þar sem spurt var hvort dómar hjá dæmdum barnaníðingum hefðu fyrnst án fullnustu refsinga á síðustu fimm árum þar sem ekki hefði verið hægt að koma föngum að í fangelsi vegna skorts á fjárveitingum.
Í svari frá Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra kemur fram að á tímabilinu hafi tveir dómar fyrnst. Í báðum tilvikum hafi aðilar verið dæmdir fyrir kynferðisbrot gegn börnum.
„Á því tímabili sem spurt er um fyrndust tveir dómar fyrir kynferðisbrot gegn börnum, einn á árinu 2021 og annar á árinu 2026. Í báðum tilvikum var um að ræða brot gegn 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (önnur kynferðisleg áreitni) og voru refsingar minna en 12 mánaða fangelsi. Slíkir dómar fyrnast á 5 árum, sbr. 1. tl. 1. mgr. 83. gr. sömu laga,“ segir í svari fangelsismálastjóra.