Brotaþoli í Reykholtsmálinu svokallaða gefur skýrslu fyrir dómi í dag. Þetta er fjórði dagur í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Suðurlands sem hófst á mánudag.
Eftir hádegi gefa fyrrverandi eiginkona brotaþola og dóttir hans skýrslu fyrir dómi. Talið er að aðalmeðferðin geti tekið allt að tíu daga.
Fimm karlar og ein kona, sem öll eru Íslendingar, eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán á heimili mannsin í Reykholti í Bláskógabyggð fyrir tveimur árum.
Sakborningarnir, sem eru tengdir fjölskylduböndum, eru sagðir hafa ruðst inn á heimili manns í Reykholti, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með grófu ofbeldi. Maðurinn var þá sextugur og er palestínskur en er með maltneskt ríkisfang.
Andri Már Mortensen Birgisson, einn sakorninga, kom fyrir dóm á mánudag en neitaði að gefa skýrslu. Ingunn Sigurðardóttir, unnusta hans, játaði sakargiftir um frelsissviptingu, þegar hún gaf skýrslu í gær, en neitar að hafa beitt brotaþola ofbeldi.
Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og lögreglustjórinn á Suðurlandi lýsti því sjálfur sem fordæmalausu.
Upphaf málsins er í ákærunni sögð hafa verið fullyrðingar eins ákærða um að maðurinn skuldaði honum leigu. Eftir að hafa beitt manninn ofbeldi og stolið af honum fé eiga sexmenningarnir að hafa farið með manninn upp á flugvöll og fylgt honum í flugvél sem fór með hann til Parísar og þaðan áfram til Möltu. Þegar maðurinn komst til Möltu tók hann leigubíl að heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar þar sem hann missti meðvitund og var í framhaldinu fluttur á sjúkrastofnun.
Upptökur af símtölum lykilgögn í málinu
Fordæmalaust magn af upptökum til í málinu. Vitað er að upptökurnar náðu yfir vikutímabil. Sími Andra Más, einn hinna ákærðu, tók upp öll símtöl og einnig hljóð þegar hringt var úr símanum þó að símtölunum væri ekki svarað. Ekki hefur þó komið fram hvers vegna símtæki Andra Más tók upp með þessum hætti.