Bretar ætla að auka eftirlit með ógnum í Norður-Atlantshafi og er það í fyrsta sinn sem þeir sinna loftrýmisgæslu hér á sjó. Sendinefnd breska varnarmálaráðuneytisins lenti á Akureyrarflugvelli í morgun og þar hittust Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Dan Jarvis, sem nýverið tók við sem varnarmálaráðherra Bretlands. Þaðan var haldið í þyrlum norður fyrir land.
Flaggskip breska sjóhersins telur 14 hæðir og áhöfnin er í kringum 1300 manns.
Íslendingar fullir þátttakendur í því að efla öryggi á Norður-Atlantshafi
Ráðherrarnir tveir áttu einkafund um borð.
„Þetta er bara táknrænt um það að við erum að efla öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og við Íslendingar erum fullir þátttakendur í því,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
„Þessi bönd eru sterk og við viljum styrkja þau og sjálfur hlakka ég til, segir Dan Jarvis, varnarmálaráðherra Bretlands.
Töluvert hefur verið fjallað um hafsvæðið í kringum Ísland, Grænland og norður af Bretlandseyjum og efasemdir verið um hvort þar sé fylgst nógu grannt með ferðum rússneskra skipa og kafbáta.
„Höldum árvekni okkar gagnvart ógninni frá Rússum og andstæðingum okkar“
Heimsóknin til Íslands er hluti af aðgerðinni Arctic Sentry - sem snýst um að auka fælingarmátt NATO á þessum slóðum.
Varnarmálaráðherra hefur trú á því að breski herinn geti staðið vörð um svæðið, þó að flaggskipið sigli síðar á önnur mið.
„Þetta er mikilvægt verkefni og er vitnisburður um um einarðan ásetning okkar um að verja norðurslóðir og vinna náið með bandamönnum okkar í NATO. Þessu verkefni lýkur á einhverjum tímapunkti en við höldum árvekni okkar gagnvart ógninni frá Rússum og andstæðingum okkar.“
Utanríkisráðherra segir verkefni Íslands fyrst og fremst að auka samvinnu og fjárfesta í innviðum landsins.
„Meðal annars höfum við verið að byggja upp í Keflavík okkar aðstöðu þar, við þurfum að halda áfram að styrkja bæði Landhelgisgæsluna. Við höfum farið af miklum krafti í að styrkja CERT-IS, netöryggissveitina okkar og síðan þurfum við líka að styrkja ríkislögreglustjóra, sérsveitina. Allt þetta skiptir máli inn í þessi framlög.“