Bresk stjórnvöld leggja til að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára. Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands segir að miðlarnir auki á óhamingju barna, veiti þeim aðgang að skaðlegu efni og séu hannaðir til að gera þau háð miðlunum.
Tillagan er afrakstur víðtæks samráðsferlis undir forystu stjórnvalda þar sem meðal annars voru gerðar tilraunir með bann og tímatakmörk á samfélagsmiðlum meðal hóps unglinga. Þar kom meðal annars í ljós að 83% foreldra töldu hættuna af samfélagsmiðlum vega þyngra en ávinninginn.
Í tillögu stjórnvalda kemur fram að bannið nái yfir miðla eins og Snapchat, TikTok, YouTube, Instagram, Facebook og X, en ekki skilaboðaþjónustur á borð við WhatsApp og Signal. „Algjört bann er rétta leiðin. Ég er ekki tilbúinn að gera málamiðlanir þegar öryggi og velferð barnanna okkar er annars vegar,“ sagði Starmer.
Aðgerðir gegn leikjaframleiðendum
Starmer bætti við að stjórnvöld ætluðu að ganga lengra og grípa til aðgerða gegn leikjaframleiðendum og miðlum sem streyma beint og gera börnum kleift að komast í samband við ókunnugt fólk. Einnig sé til skoðunar að setja reglur um notkun 16-18 ára barna, til dæmis með því að loka fyrir aðgang að næturlagi og koma í veg fyrir of langa samfellda viðveru.
Í síðustu viku sögðu stjórnvöld að tæknirisarnir ættu að koma í veg fyrir að bresk börn gætu sent og tekið á móti nektarmyndum á tækjum sínum. Apple og Google fengu þriggja mánaða frest til að gera slíkar ráðstafanir, annars yrðu sett lög sem þvinguðu fyrirtækin til þess.
Ástralar settu samfélagsmiðlabann á börn í desember og voru til þess. Starmer segir bannið byggt á þeirra reynslu. Lítið hefur þó breyst í raun í Ástralíu þar sem mörgum börnum hefur tekist að komast fram hjá þessum aldursmörkum. Fleiri þjóðir hafa fetað þessa slóð. Indónesía kom á sambærilegu banni í mars. Í síðustu viku kynnti svo menningarmálaráðherra Kanada frumvarp sem bannaði ekki aðeins börnum aðgang að samfélagsmiðlum heldur gerir gervigreindarfyrirtækjum skylt að takmarka framleiðslu á skaðlegu efni.
Talsmenn YouTube og Snapchat vara við því að svona bann ýti börnum í átt að miðlum sem séu ekki eins öruggir. Hagsmunasamtök hafa einnig efasemdir um að þetta virki. Jim Gamble, sem stýrir samtökum gegn misnotkun á börnum, segir þetta geta ýtt börnum út í dimma afkima netsins.
Louise Gibson móðir Noah Gibson, 11 ára drengs sem dó eftir að hafa tekið þátt í áskorun sem gekk á samfélagsmiðlum, sagði bannið vera réttu leiðina, bæði fyrir börn og foreldra.
Áætlað er að frumvarpið verði að lögum í desember og bannið taki gildi vorið 2027.