Tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, fundust látin í bifreið foreldra sinna í bænum Carpentras í suðurhluta Frakklands í dag. AFP fréttastofan hefur eftir rannsóknardómara í bænum að börnin hafi að líkindum dáið vegna ofhitnunar, en hitastigið í Carpentras hefur verið nálægt fjörtíu gráðum í dag, rétt eins og víða annars staðar í Frakklandi. Ekki er ljóst hvers vegna börnin voru í bifreiðinni. Rauðar viðvaranir eru í gildi víða um Frakkland og í nágrannaríkjunum vegna hitabylgjunnar sem nú gengur yfir Evrópu. Víða er búist við um og yfir fjörtíu stiga hita í dag og næstu daga.
Börn fundust látin í bifreið í næstum fjörtíu stiga hita