Velska tónlistarkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler er einna frægust fyrir slagarana Total Eclipse of the Heart og Holding on for a Hero.
Í tilkynningu á vefsíðu tónlistarkonunnar segir að fjölskylda hennar og starfsfólk sé miður sín að tilkynna að Bonnie hafi óvænt látið lífið á sjúkrahúsi í Portúgal.
Starfsfólk Tyler greindi frá því í byrjun maí að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús í Faro til að gangast undir bráðaaðgerð á þörmum. Henni var haldið sofandi um tíma en var vöknuð og talin vera á batavegi, að því er fram kom á Facebook-síðu tónlistarkonunnar.
Í tilkynningunni í dag segir að von sé á frekari upplýsingum en að aðstandendur biðji um næði.