Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti ó­vinur - Vísir

Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti ó­vinur - Vísir

Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti ó­vinur - Vísir

Í Blood of Dawnwalker setja spilarar sig í spor ungs manns sem heitir Coen og er frá Laslea. Það er þorp í dalnum Vale Sangora í Karpatafjöllum. Leikurinn gerist á fjórtándu öld þegar plága herjar á dalinn og dregur fjölda fólks til dauða. Lávarður dalsins, sem er mikill harðstjóri, reynir að draga úr útbreiðslu plágunnar með því að drepa alla þá sem smitast.

Þegar systir Coens smitast reynir hann að forða henni frá mönnum lávarðarins en það tekst ekki. Áður en menn hans myrða systur Coens birtast þó vampírur sem drepa lávarðinn og menn hans. Ein vampíran, leiðtogi hópsins sem heitir Brencis, gefur systur Coens blóð sitt.

Leikurinn byrjar á þessu myndbandi, sem var einnig stikla hans.

Í kjölfarið taka vampírurnar yfir stjórn Vale Sangora. Með því að gefa þegnum sínum blóðdropa af og til er dreifing plágunnar stöðvuð en í staðinn þarf fólk að búa við mikið harðræði vampíranna og reglulega blóðtöku.

Seinna meir er fjölskyldu Coens rænt af vampírunum og hann verður það sem kallað er Dawnwalker, sem þýðir að á næturnar er hann vampíra en á kvöldin er hann mennskur.

Coen þarf því að læra á nýja hæfileika sína, drepa fullt af drullusokkum og bjarga fjölskyldu sinni. Til þess hefur hann þó mjög takmarkaðan tíma, sem er einhver áhugaverðasti hluti leiksins.

Frændi Witcher 3

Það voru fyrrverandi starfsmenn CD Projekt RED sem stofnuðu fyrirtækið Rebel Wolves og gerðu Blood of Dawnwalker. Margir þeirra komu að því að gera Witcher 3, sem er einhver heimsins besti leikur. BoD ber þess fjölmörg einkenni að vera skyldur W3.

Leikurinn er unninn í Unreal Engine 5. Hann lítur mjög vel út en þar sem hann skarar fram úr er andrúmsloftið. Það er hreinlega framúrskarandi.

Vale Sangora er í stuttu máli sagt einhver myrkasti staður heimsins. Það virðist bókstaflega allt sökka þarna og dalurinn er stútfullur af allskonar kvikindum og drullusokkum.

Vale Sangora er fallegur staður, þó það sé gjörsamlega hræðilegt að búa þar. Bókstaflega allt virðist vilja drepa þig.Rebel Wolves

Eymdin er gífurleg en inn á milli má finna ljós í myrkrinu. Ef það er einhver vongóð persóna er hún reyndar yfirleitt drepin seinna meir. Þetta svipar allt mjög til Witcher 3, nema bara töluvert meiri eymd enda sökkar allt í þessum söguheimi.

Landslag dalsins er mjög fjölbreytt en honum er í raun skipt niður í nokkur svæði og í honum miðjum er svo stór borg.

Ef maður fer af vegunum og skoðar sig um í náttúrunni má svo finna allskonar ófreskjur til að drepa, fjársjóði og fornar minjar. Það er fullt af sjitti til að skoða.

Gallinn er að maður hefur eiginlega ekkert tíma til þess.

Tíminn er manns helsti óvinur

Þá erum við komin að því sem mér þykir hvað áhugaverðast við Blood of Dawnwalker. Það er tíminn og hvernig unnið er með hann. Tíminn er helsti gjaldmiðill Coens.

Þegar formáli (Prologue) BoD er búinn og dalurinn opnast almennilega hefur Coen þrjátíu daga til að bjarga fjölskyldu sinni, eða ekki. Hverjum degi er skipt upp í dag og nótt og hverjum hluta er skipt niður í átta minni tímabil. Það eru sumsé sextán tímabil í hverjum sólarhring í BoD.

Coen er myndarmaður. Augun í honum benda til þess að hann ætti að sjá ágætlega í myrkri en því miður er það ekki svo. Það er einfaldlega asnalegt að vampíra með svona augu þurfi að nota kyndil til að sjá í myrkri.Rebel Wolves

Tíminn líður ekki við það að ferðast um dalinn en þegar spilarar leysa verkefni, finna nýja hluti, nota hæfileikapunkta til að gera Coen betri og við ýmis önnur tilefni, líður tíminn. Hversu mikill tími líður veltur á verkefninu sem Coen gerði.

Maður hefur því takmarkaðan tíma til að gera Coen öflugri, finna betri vopn og klæðnað, læra nýja galdra og hæfileika og til að finna leiðir til að bjarga fjölskyldu hans. Allur leikurinn er kapphlaup við tímann.

Fullt af spurningarmerkjum eftir

Í hefðbundnum hlutverkaleikjum sem gerast í opnum heimi fer ég yfirleitt á milli spurningarmerkja á kortum leikjanna, sé hvað er að finna þar og leysi þar verkefni ef þau eru í boði. Þannig gerir maður þetta yfirleitt koll af kolli þar til það eru engin spurningarmerki eftir.

Þetta er ekki í boði í BoD. Þegar ég kláraði leikinn í fyrsta sinn var ég ekki búinn að skoða stóra hluta kortsins og hafði ekki leyst aragrúa af verkefnum, þar sem ég hafði bara ekki tíma til þess.

Þetta kerfi stýrir alfarið spilun leiksins og hefur í senn þau áhrif að mann langar að spila leikinn aftur og leggja þá meiri áherslu á aðra hluta Vale Sangore og önnur verkefni.

Mikill munur á degi og nótt

Annað sem er þrusugott í þessum leik og snýr að tímanum er það hvernig spilunin breytist eftir því hvort það er dagur eða nótt, hvort Coen er mennskur eða vampíra.

Á daginn notar hann sverð og getur notað galdra. Á næturnar getur hann notað sverð, klær, blóðdrykkju og blóðgaldrar.

Hann getur líka klifrað á allskonar yfirborðum og skuggastigið, eins og það er kallað, yfir ákveðna vegalengd. Þannig getur hann skoðað svæði sem ekki er hægt að sjá á daginn.

Fari maður mjög særður eða þyrstur inn í samtöl á næturnar, getur það gerst fyrir tilviljun að Coen ræðst á viðkomandi og drekkur úr honum blóðið. Það getur hann meira að segja gert við mikilvægar persónur, sem er mjög töff.

Það eru nokkrar leiðir til að leysa flest verkefni og þó nokkrar til að bjarga fjölskyldu Coens. Tæknilega séð, ef þú ert nógu góður, áttu að geta gert það nánast um leið og leikurinn byrjar.

Kingdom Come keimur af bardagakerfinu

Þá komum við að bardagakerfi BoD. Það er svolítið öðruvísi en gengur og gerist en líkist að vissu leyti bardagakerfi Kingdom Come Deliverance leikjunum, þar sem það skiptir máli úr hvaða áttum árásirnar gegn Coen koma.

Maður einblínir eingöngu á einn óvin í einu og hann getur ráðist á mann með hefðbundnum árásum úr fjórum áttum. Til að verjast þeim árásum best, þarf maður að ýta í rétta átt og ýta á „verjasigtakkann“ á hárréttum tíma.

Coen berst við allskonar kvikyndi.Rebel Wolves

Með þessu opnar maður fyrir árásir á óvni Coen og græðir orku. Klikki þetta fær Coen högg og það kostar orku.

Það er einnig hægt að verjast almennt, með því að ýta aldrei í neina átt og verjast eingöngu en það er alls ekki jafn gott. Það kostar bæði orku og býður ekki upp á gagnhögg.

Þegar aðrir óvinir ráðast á Coen úr öðrum áttum þarf maður að verjast í þá átt sem þeir ráðast á hann úr. Svo eru auðvitað árásir sem maður getur ekki varist og þarf að koma sér undan.

Hér að neðan má sjá smá myndband sem sýnir ágætlega hvernig bardagakerfið virkar.

Bardagakerfi BoD getur verið svolítið einsleitt, þegar maður er búinn að vera að gera það sama mjög lengi. Þá þurfa margir óvinir Coens að fá leiðinlega mörg högg áður en þeir drepast.

Það hjálpar samt að Coen öðlast ýmsa hæfileika í gegnum spilun leiksins, sem hrista upp í hlutunum.

Coen mætti líka fá fjölbreyttari tegundir óvina. Ekki veit ég hvaðan allir þessir úlfar eiga að koma og af hverju í ósköpunum þeim dettur í hug að ráðast ítrekað á vampírur.

Erfitt sjónarhorn

Annar galli í bardagakerfinu er að sjónarhornið í bardögum, sem er yfir öxlina á Coen eins og í flestum svona leikjum, getur farið svolítið illa með mann. Í þröngum rýmum þar sem Coen er umkringdur óvinum getur sjónarhornið verið svolítið ringlandi og gert manni erfitt að sjá árásir og hvaðan þær eru að koma

Leikurinn er líka mjög myrkur, eðlilega svo sem, eeeeen. Coen er vampíra á næturnar og með augu eins og kvikindi sem sjá vel í myrkri. Hann sér þó ekkert betur í myrkri og maður þarf ítrekað að nota kyndil.

Þetta er kannski smáatriði en mér finnst það frekar leim.

Eins og áður hefur komið fram er BoW nokkuð skyldur Witcher 3. Það sést í spilun leiksins, andrúmslofti og bardagakerfinu líka. Það sést þó hvergi betur en þegar kemur að vösum Coens. Þeir eru alltaf stútfullir af allskonar sjitti sem maður getur notað til að brugga hin ýmsu seiði en maður gerir sjaldan.

Inventory managment, eins og þeir segja í henni Ameríku, er algjört sjittsjóv. Alveg eins og það er í Witcher 3.

Annað sem er alveg eins og í Witcher er að Coen þarf oft að fylgja einhverskonar slóð eða leysa gátur og þá notar maður sérstakan fókus sem er mjög líkur því hvernig Geralt lyktar af loftinu eða sér fótspor í jörðinni. Algert aukaatriði reyndar, en kannski finnst einhverjum það áhugavert.

Pirrandi fátækt

Svo er eitt, sem er kannski ekki galli en það fer í taugarnar á mér.

Eins og þekkist í hlutverkaleikjum byrjar Coen á fyrsta stigi og hækkar um stig þegar hann leysir verkefni, drepur kalla og slíkt og nær hærri stigum. Mest getur Coen náð stigi 50.

Í gegnum spilun leiksins finnur maður aragrúa af mismunandi vopnum, fötum, brynjum, hringum og slíku sem Coen getur notað. Þessum búnaði fylgja mismunandi bónusar sem geta hentað fyrir það hvernig spilarar byggja sinn Coen upp.

Þá er ég að tala um að ákveðnum hringjum geta fylgt bónusar á skaða með sverðum eða klóm og slíkt. Þá getur Coen verið í mismunandi fötum og með mismunandi vopn eftir því hvort það er dagur eða nótt, en sumir bónusar eru eingöngu fyrir vampíru-Coen og aðrir eingöngu fyrir manna-Coen.

Rebel Wolves

Það sem fer í taugarnar á mér við þetta er að þegar maður finnur þetta dót er það einnig á stigum eins og Coen. Ef þú finnur besta sverðið í leiknum þegar Coen er á tuttugasta stigi, er sverðið á því stigi líka, eða því nálægt.

Hægt er að borga ákveðnum persónum fyrir að hækka þennan búnað um stig en í tilfelli sverða gera þau þá aukinn skaða og bónusarnir verða betri. Þetta kostar fáránlega marga peninga og í raun mun meiri peninga en Coen aflar sér í leiknum. Það er því ekkert hægt að flakka auðveldlega á milli vopna eða fatnaðar eins og maður vildi gera. Þetta er þreytandi. Eiginlega bara óþolandi.

Á meðan ég man!

Jeminn, ég var líka næstum því búinn að gleyma einu af því allra versta við þennan leik. Af hverju í ósköpunum dettur leikjaframleiðendum í hug að spilarar hafi áhuga á því að þurfa að ýta á einhverja takka þegar myndbönd spilast í leikjum? HVAÐ VELDUR ÞESSU EIGINLEGA?!?

Á ensku kallast þetta Quick Time Events eða QTE og þetta er það allra heimskulegasta og versta sem gerst hefur í sögu tölvuleikja. Megi maðurinn sem fann upp á þessu stíga á alla heimsins LEGO-kubba!

Rebel Wolves

Í BoD, þegar Coen þarf að færa skápa eða grafa holur, fylgja því stutt myndbönd. Þau stöðvast þó á ákveðnum köflum og maður þarf að ýta á takka til að fá Coen til að byrja að ýta skápunum eða stinga skóflunni í jörðina. Þetta er gjörsamlega óþolandi og við eigum ekki að sætta okkur við þetta.

AAAARGH!

Jæja. Þarna fór skapið í dag.

Ég spilaði leikinn á PC og það hefur verið nokkuð um hökt og þá sérstaklega í myndböndum. Mér finnst leikurinn samt líta ágætlega út og ég varð lítið var við annað en útlitsgalla og hægagang, sem ég reddaði að mestu með því að lækka aðeins gæðin.

Samantekt-ish

Jesús, þetta er orðið allt of langt hjá mér. Blood of Dawnwalker er mjög áhugaverður leikur og ég skemmti mér konunglega við að spila hann, þótt hann sé alls ekki gallalaus. Forsvarsmenn Rebel Wolves hafa þegar gefið út að þeir ætli að gera fleiri leiki í söguheiminum og það er nokkuð augljóst við spilun hans.

Sögusköpunin er mjög góð í BoD, þar sem heimurinn er þróaður og ljósi varpað á samfélag vampíra í heiminum. Það er samt fullt af spurningum ósvarað en það mun væntanlega taka mörg ár að fá þau svör.

Ég lagði mikið á mig við að taka hreina spilun, taka ákvarðanir án þess að skoða afleiðingarnar fyrirfram og gerði þar af leiðandi fjölmörg mistök. Ég sé alveg fyrir mér að spila þennan leik margsinnis á næstu árum, eins og að spila vondan vampíru-Coen. Í fyrstu spilun hélt ég honum eins mennskum og mögulegt var og forðaðist að sökkva mér í blóði óvina minna og óbreyttra borgara. Það verður ekki þannig næst.

Í stuttu máli sagt, ef þú hefur mikinn áhuga á hlutverkaleikjum og/eða fannst Witcher 3 góður leikur, þá finnst mér hæpið að þú verðir fyrir vonbrigðum með Blood of Dawnwalker.

#blood #dawnwalker #helsti #tíminn #þinn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262934634d/blood-of-dawnwalker-timinn-er-thinn-helsti-o-vinur

📰 Aðrar fréttir

Baldvina Ýr verður forstjóri SÁÁ
📅 16.09.2026 👁️ 1
Baldvina Ýr verður forstjóri SÁÁ
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnasviðs hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, hefur verið ráðin...
Svarthöfði skrifar: Síðmiðaldra gervisiðapostuli með skipt í miðju
📅 16.09.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Síðmiðaldra gervisiðapostuli með skipt í miðju
Svarthöfði er áhugamaður um pólitík – síður um pólitíkusa, með örfáum undantekningum þó. Þær eiga ekki við um Karl Gauta Hjaltason, þingmann Miðflokks...
Likud-flokkurinn vill ekki leyfa Ísraelsmönnum erlendis að kjósa
📅 16.09.2026 👁️ 1
Likud-flokkurinn vill ekki leyfa Ísraelsmönnum erlendis að kjósa
Likud-flokkur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, fer þess á leit við yfirkjörstjórn landsins að hafna tillögum um að leyfa ísraelskum ríki...
Part-human part-mouse brain developed in science breakthrough
📅 16.09.2026 👁️ 1
Part-human part-mouse brain developed in science breakthrough
Researchers at Stanford University genetically altered mice to be able to receive and function with human brain cells.
Hægt að spyrja hvort það hafi hjálpað landsbyggðinni að vera með aukaþingmenn
📅 16.09.2026 👁️ 1
Hægt að spyrja hvort það hafi hjálpað landsbyggðinni að vera með aukaþingmenn
Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði vill stórfjölga jöfnunarsætum til að jafna vægi atkvæða. Þingmaður Norðausturkjördæmis telur tillögurnar ekki...
Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður - Vísir
Dunham greindi frá tíðindunum í skoðanagrein í tímaritinu Vogue í dag og með greininni birtist mynd af hjónunum með dóttur sinni og hundi. Dunham skri...
Hútar skutu niður her­þotu Sáda - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Hútar skutu niður her­þotu Sáda - Vísir
Hútar hafa lagt undir sig stóran hluta vesturstrandar Jemen og mikilvægar eyjur á Rauðahafi. Þá hafa þeir gert ítrekaðar árásir á olíuvinnsluinnviði í...
Fimm aukaíbúðir þar sem að­eins mátti vera ein - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Fimm aukaíbúðir þar sem að­eins mátti vera ein - Vísir
Málið varðar Depluhóla 7. Samkvæmt gögnum málsins voru fjórar íbúðir innréttaðar í kjallara, þar sem áður var ein, og sú fimmta í bílskúr. Borgin hafn...
Photos show widespread damage at US sites from Iranian attacks
📅 16.09.2026 👁️ 1
Photos show widespread damage at US sites from Iranian attacks
A wrecked air force plane and destroyed buildings are among the images obtained by the BBC's partner CBS News.
Segja fjárfesta með tengsl við Trump hafa keypt hús fyrir eiginmann Motzfeldt
📅 16.09.2026 👁️ 1
Segja fjárfesta með tengsl við Trump hafa keypt hús fyrir eiginmann Motzfeldt
Hópur bandarískra fjárfesta með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta er sagður hafa keypt hús fyrir grænlenska kaupsýslumanninn og fyrrverandi st...
Meðlimur Pussy Riot opnar sýningu á föstudag
📅 16.09.2026 👁️ 3
Meðlimur Pussy Riot opnar sýningu á föstudag
SWEAT and BLOOD, ný sýning Diönu Burkot opnar í SIND gallery, Hringbraut 122, föstudaginn 18. september kl. 18. Burkot er meðlimur í Pussy Riot, hún e...
Reiði í Vestmannaeyjum eftir að menn skutu dúfur úti í hrauni – „Ljóta villimennskan“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Reiði í Vestmannaeyjum eftir að menn skutu dúfur úti í hrauni – „Ljóta villimennskan“
Myndir af blóðugum dúfnahræjum og skothylkjum á víðavangi í Vestmannaeyjahrauni hafa valdið ólgu í Facebook-hópnum „Dýravinir Vestmannaeyja“. Ekki er ...
Dettifossmálið: Sakar ákæruvaldið um vegferð gegn sér - „Ég er ekki Cloud“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dettifossmálið: Sakar ákæruvaldið um vegferð gegn sér - „Ég er ekki Cloud“
Áfram heldur aðalmeðferð í svokölluðu Dettifossmáli þar sem fjórir svara til saka fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Ákærðu, Sævari Erni Hilmarssyni, ...
Leystu upp bíræfið svikagengi á Spáni – Fengu eldri borgara til að afsala sér heimilum sínum
📅 16.09.2026 👁️ 1
Leystu upp bíræfið svikagengi á Spáni – Fengu eldri borgara til að afsala sér heimilum sínum
Lögreglan á Spáni hefur leyst upp glæpasamtök sem stunduðu bíræfna svikastarfsemi gagnvart eldri borgurum. Hópurinn gaf út falsaðar rukkanir og lét fó...
Kannast ekkert við málið og segir lög­reglu hafa komið fíkni­efnum fyrir - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Kannast ekkert við málið og segir lög­reglu hafa komið fíkni­efnum fyrir - Vísir
Kastriot mætti síðastur fjögurra sakborninga fyrir dóm og gaf skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins í dag. Honum er gefið að sök að hafa skipulag...
80% barna í 4.-5. bekk á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til
📅 16.09.2026 👁️ 1
80% barna í 4.-5. bekk á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Í skilmálum flestra samfélagsmiðla er kveðið á um að þeir séu bannaðir...
Andy Burnham and his chancellor have a battle on their hands
📅 16.09.2026 👁️ 2
Andy Burnham and his chancellor have a battle on their hands
The Budget is only six weeks away and the economy is undoubtedly the biggest challenge facing the prime minister.
Eight German state premiers back Merz amid speculation over his future
📅 16.09.2026 👁️ 2
Eight German state premiers back Merz amid speculation over his future
Christian Democratic Union leadership throws its weight behind the chancellor ahead of two state elections this weekend.
'Putney pusher' suspect found dead at home
📅 16.09.2026 👁️ 2
'Putney pusher' suspect found dead at home
Nicholas Brandram was a suspect in the incident where a woman was shoved into the path of a bus nine years ago.
Hashim Thaçi dæmdur fyrir stríðsglæpi í Kósovó-stríðinu
📅 16.09.2026 👁️ 2
Hashim Thaçi dæmdur fyrir stríðsglæpi í Kósovó-stríðinu
Hashim Thaçi, fyrrverandi forseti Kosóvó, var í morgun dæmdur sekur um stríðsglæpi og til 25 ára fangelsisvistar.Réttað var yfir Thaci og þremur öðrum...
Blindfullum ung­lingum fækkar - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Blindfullum ung­lingum fækkar - Vísir
Embætti landlæknis kynnti Lýðheilsuvísa ársins 2026 á Egilsstöðum í dag. Þar eru teknar saman niðurstöður úr könnunum og opinberum skrám um meðal anna...
Blendnar til­finningar á Degi ís­lenskrar náttúru - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Blendnar til­finningar á Degi ís­lenskrar náttúru - Vísir
„Í dag ætlum við að halda upp á Dag íslenskrar náttúru með fögnuði í Tónabíói klukkan fimm þar sem allir eru velkomnir. Það er alltaf fagnaðarefni að ...
Schools in England get extra £500m in bid to avoid teacher pay strike
📅 16.09.2026 👁️ 2
Schools in England get extra £500m in bid to avoid teacher pay strike
The offer of extra money by the government reduces the prospect of strike action by the largest teaching union.
Þrjá­tíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matar­veislu - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Þrjá­tíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matar­veislu - Vísir
„Það er erfitt að nefna eitt atriði sem stóð upp úr því dagurinn varð mun stærri og glæsilegri en ég þorði að vona. Ef ég ætti þó að velja eitt væri þ...
90 ár frá strandi Pourquoi Pas?
📅 16.09.2026 👁️ 2
90 ár frá strandi Pourquoi Pas?
Franska rannsóknaskipið Pourquoi Pas? var statt fyrir utan Reykjanes þann 15. september 1936 þegar veðrið fór að versna. Skipið hélt inn á Faxaflóa ti...
Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í gær til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti. Hann var ákærður fyrir að taka ítrekað...
Microsoft says AI rival Anthropic could have 'disastrous impact' on humanity
📅 16.09.2026 👁️ 2
Microsoft says AI rival Anthropic could have 'disastrous impact' on humanity
Mustafa Suleyman says he believes the AI giant is in effect teaching Claude it "may be conscious".
Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“
Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærður er í máli sem varðar innflutning á um 14 lítrum af amfetamínbasa, segist hafa upplifað að hann ætti erf...
„Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið
📅 16.09.2026 👁️ 2
„Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið
Aðalmeðferð í Dettifossmálinu svokallaða hófst í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Alls eru fjórir ákærðir og snýst málið um smygl á rúmum 14 lítrum af...
Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir
Sendlar sem starfa fyrir heimsendingarfyrirtækið Wolt hér á landi lögðu niður störf tímabundið í dag. Þetta gerðu þeir til að ná athygli forsvarsmanna...
CCTV shows last sighting of Noah Woods
📅 16.09.2026 👁️ 2
CCTV shows last sighting of Noah Woods
Suffolk Police released CCTV of the last confirmed sighting of Noah in the park in Brantham at 14:37 BST on Tuesday.
Former Cambridgeshire officer jailed for 'toxic' WhatsApp culture
📅 16.09.2026 👁️ 3
Former Cambridgeshire officer jailed for 'toxic' WhatsApp culture
Former officer who asked for a suspect's sex video to show "the lads from footy" is jailed for four years.
Margir telji hús­næði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Margir telji hús­næði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð - Vísir
Gangi samningaviðræður eftir verður brottfarastöð fyrir útlendinga sem vísa á úr landi opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Svæðið gengur undi...
Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“ - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“ - Vísir
Í yfirlýsingu sinni sagði hann meðal annars að hann hefði enga aðkomu átt að málinu, hann væri ekki sá sem gengur undir nafninu Cloud, sem fjallað hef...
Ný réttar­höld gætu reynst flókin í fram­kvæmd - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ný réttar­höld gætu reynst flókin í fram­kvæmd - Vísir
Eftir réttarhöldin eru uppi spurningar um það hvernig kviðdómendur eru valdir í Massachusetts í Bandaríkjunum. Dómarinn í málinu hefur tryggt að nöfn ...
Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi - Vísir
Vestfirski fréttamiðilinn Bæjarins besta greinir frá málinu í gær. Í frétt Bæjarins besta kemur fram að á síðasta ári hafi Fjórðungssamband Vestfirðin...
EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka
📅 16.09.2026 👁️ 2
EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka
Blóðsöfnun Ísteka úr fylfullum blóðmerum fellur undir tilskipun Evrópusambandsins um tilraunir eða vísindalegan tilgang, segir EFTA-dómstóllinn í ráðg...
Fóru átta­tíu prósent fram úr á­ætlun - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Fóru átta­tíu prósent fram úr á­ætlun - Vísir
Gulli Helga, umsjónarmaður þáttanna, segir að sem fyrr sé fjölbreytnin í fyrirrúmi. Það verður meðal annars fylgst með lagfæringum á veitingastað þar ...
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND)
📅 16.09.2026 👁️ 2
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND)
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND) Fréttin16. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Úkraín...
Earl Spencer's unreleased book on Diana stolen in the Netherlands
📅 16.09.2026 👁️ 2
Earl Spencer's unreleased book on Diana stolen in the Netherlands
The theft of Earl Spencer's memoir about his late sister comes one week ahead of the book's release.
Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttastofu vegna umfjöllunar Vísis í gær um dagsleyfi Hannesar Valle Þor...
Blóð­taka úr hryssum telst til­raun á dýrum - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Blóð­taka úr hryssum telst til­raun á dýrum - Vísir
Fyrirtækið Ísteka stefndi íslenska ríkinu eftir að Matvælastofnun synjaði því um leyfi til blóðmerahalds í vor. Stofnunin taldi starfsemina ekki uppfy...
Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“
„Það ætla ég bara rétt að vona, að ríkið komi ekki enn einu sinni hér og geri eitthvað án samráðs við sveitarfélögin,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjar...
Þögull sem gröfin um Sæ­var - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Þögull sem gröfin um Sæ­var - Vísir
Þetta kom fram þegar skipverjinn gaf skýrslu við aðalmeðferð Dettifossmálsins. Áður hafði hinn skipverjinn gefið skýrslu en fjallað er um hana í frétt...
Dettifossmálið - Upplifði sig svikinn og notaðan og er óskýr um aðkomu Sævars Arnar
📅 16.09.2026 👁️ 3
Dettifossmálið - Upplifði sig svikinn og notaðan og er óskýr um aðkomu Sævars Arnar
Aðalmeðferð er nú hafin í svokölluðu Dettifossmáli eftir nokkuð lífleg átök í Héraðsdómi Reykjavíkur. Meðal ákærðra eru Sævar Örn Hilmarsson, Kastriot...
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ
📅 16.09.2026 👁️ 3
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ
Í götunni Nónvörðu í Reykjanesbæ hefur Íslandshús komið fyrir fyrstu forsteyptu hraðahindruninni sem fyrirtækið framleiðir. Um er að ræða afrakstur þr...
Morðingi sem verður tekinn af lífi í dag pantaði risastóra hinstu máltíð – Sjáðu hvað hann pantaði
📅 16.09.2026 👁️ 3
Morðingi sem verður tekinn af lífi í dag pantaði risastóra hinstu máltíð – Sjáðu hvað hann pantaði
Stacey Humphreys verður tekinn af lífi fyrir tvö morð í dag í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Humphreys pantaði risavaxna hinstu máltíð.Breska blaðið Th...
Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi - Vísir
Mbl greindi frá tíðindunum í morgun en engin formleg skýring hefur verið gefin út af Apple um breytinguna.  Þegar vefsíða Apple yfir aðgengi ólíkra la...
Andy Burnham rejects 'tax and spend socialist' comments
📅 16.09.2026 👁️ 3
Andy Burnham rejects 'tax and spend socialist' comments
The prime minister insists he is prepared to take "difficult decisions" at next month's Budget.
Tenerife South passenger numbers fall as other Canary Islands airports grow
📅 16.09.2026 👁️ 3
Tenerife South passenger numbers fall as other Canary Islands airports grow
Passenger traffic at Tenerife South Airport fell by 4.2% during August, making it the notable exception as most of the Canary Islands' other major air...