Leikkonan Blake Lively og leikarinn Justin Baldoni hafa leyst úr dómsmáli sem þau lögðu fram gegn hvort öðru eftir tökur á kvikmyndinni It Ends With Us árið 2024.
Lögmenn Lively og Baldoni birtu sameiginlega yfirlýsingu sem felur í sér að málið verði ekki tekið frekar fyrir dómstólum, en meðferð málsins átti að hefjast 18. maí.
Í yfirlýsingunni kemur fram að myndin sé uppspretta stolts fyrir öll þau sem unnu að því að gera hana. „Að vekja til vitundar og hafa áhrif á líf þeirra sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi – og allra þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi – er markmið sem við styðjum að fullu.“
Lögmennirnir viðurkenna að ferlið hafi leitt af sér áskoranir og viðurkenna að áhyggjur sem Lively tók fram hafi átt skilið áheyrn og að þau séu staðráðin í að tryggja að vinnustaðurinn sé laus við óviðeigandi hegðun.
„Það er okkar einlæga von að þetta verð til að ljúka málinu og leyfi öllum þeim sem eiga hlut að halda áfram á uppbyggilegan og friðsælan hátt, þar með talið í virðingarfullu umhverfi á netinu.“
Lively sakaði Baldoni fyrst um kynferðislega áreitni og smánun á tökustað myndarinnar, sem þau fara bæði með stór hlutverk í. Auk þess sakaði hún Baldoni og kvikmyndaver hans, Wayfarer, um að reyna að eyðileggja orðspor hennar.
Stuttu eftir það sakaði Baldoni Lively um að ætla að eyðileggja feril hans og orðspor með ásökununum. Hann höfðaði einnig mál gegn New York Times fyrir að hafa birt grein um ásakanir Lively.
Fyrir rúmum mánuði vísaði dómari frá 10 af 13 ásökunum í máli Lively, þar á meðal ásökunum um áreitni og meiðyrði. Þrjár kröfur voru látnar standa sem varða samningsbrot og ófrægingarherferð.
Mál Baldoni gegn Lively var einnig vísað frá af sama dómara.