Bláa lónið hefur samið um að stórauka hlut sinn í Norðurböðum, gangi viðskiptin í gegn eykst hlutur fyrirtækisins úr þriðjungi í rúmlega 80%.
Norðurböðin ehf. eru hluthafar í Jarðböðunum við Mývatn, Sjóböðunum á Húsavík og sömuleiðis eru Jarðböðin hluthafi í Vök á Egilsstöðum. Bláa lónið mun því aðeins eiga óbeinan eignarhlut í Vök.
„Markmið viðskiptanna er að styrkja grunnrekstur Bláa lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins,“ segir í tilkynningu Bláa lónsins.
Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Bláa lónsins hf. og Samkeppniseftirlitsins.
Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa lónsins segir í tilkynningu að uppbygging baðlóna á Íslandi hafi verið helsti vaxtarsproti ferðaþjónustu allt frá stofnun Bláa lónsins.
„Bláa lónið hefur fjárfest í einstökum áfangastöðum víða um land og staðirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa sína eigin sögu að segja,“ segir Sigríður.