Bláa Lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum á Mývatni og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. Kjarnastarfsemi þessara félaga er rekstur baðlóna. Markmið viðskiptanna er að styrkja grunnrekstur Bláa Lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins, eins og segir í tilkynningu.
Bláa Lónið hf. eykur hlut sinn í þremur baðlónum