Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni að á morgun nálgist lægð úr suðvestri. Þá gengur í austan 5-10 m/s, en 10-15 við suðurströndina. Léttskýjað og sólríkt norðanlands, en skýjað að mestu á sunnanverðu landinu og auk þess smáskúrir á Suðausturlandi. Hiti 12 til 20 stig og hlýjast á Norðurlandi.
Á þriðjudag dregur síðan aftur úr vindi með björtu veðri nokkuð víða, en skýjað og smávegis væta á Austfjörðum og Suðausturlandi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Gengur í austan 5-10 m/s, en 10-15 við suðurströndina. Bjartviðri norðan- og vestanlands, en dálítil væta um landið suðaustanvert. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Á þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-10 og bjart með köflum, en lítilsháttar væta á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hiti 12 til 17 stig, en svalara við austurströndina.
Á miðvikudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og hiti víða 10 til 15 stig.
Á fimmtudag:
Suðvestan 3-10 og bjartviðri, en skýjað með lítilsháttar rigningu um landið vestanvert. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austantil.
Á föstudag:
Sunnanátt og rigning, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu.
Á laugardag:
Breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum. Kólnar heldur í veðri.