Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur aftur hafnað beiðni Donald Trump um endurupptöku í máli rithöfundarins E. Jean Carrol. Trump var árið 2023 dæmdur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn Carrol og fyrir ærumeiðingar í hennar garð.
Þetta er í annað sinn sem Hæstiréttur hafnar beiðni Trumps um endurskoðun málsins. Í júní hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna beiðni Trumps um endurupptöku en honum var gert að greiða Carrol rúma fimm milljónir dala, eða um 650 milljónir íslenskra króna, í skaðabætur vegna kynferðisbrotsins.
Carrol segir Trump hafa beitt sig kynferðislegu áreiti árið 1996 og síðar haldið því fram á samfélagsmiðlum að ásakanirnar hafi verið uppspuni frá rótum.
Vísar ásökunum alfarið á bug
Carrol, sem er nú 82 ára, stefndi forsetanum og sagði hann hafa ráðist á sig í mátunarklefa í verslun á Manhattan í New York. Trump vísaði ásökunum Carrol strax á bug og sagði meðal annars í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social að Carrol væri ekki „hans týpa“.
Trump hefur ekki tjáð sig um höfnun hæstaréttar við beiðni sinni. Hins vegar skrifaði hann langa færslu á Truth Social þegar fyrri beiðni Trumps um endurupptöku var hafnað í júní þar sem hann kvaðst berjast gegn „vopnavæðingu réttarkerfisins“ og „fáránlegu“ ærumeiðingarmáli Carrol.
Trump hefur einnig óskað eftir því að Hæstiréttur hnekki öðrum dómi alríkisdómstóls þar sem honum var gert að greiða Carroll 83 milljónir dala í skaðabætur vegna ærumeiðinga.
Hæstiréttur hefur ekki enn tekið ákvörðun í því máli.