Sláandi myndir sýna hræðilegt ástand og aðstæðurnar fyrrum barnastjörnunnar Daveigh Chase skömmu fyrir andlát hennar. Líkt og DV greindi frá í morgun lést Chase á þriðjudaginn eftir baráttu við heilahimnubólgu og alvarlega blóðsýkingu sem leiddi til sýklasóttar
Chase var hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem Samara Morgan í hryllingsmyndinni The Ring og fyrir að ljá Lilo rödd sína í teiknimyndinni Lilo & Stitch. Undanfarin ár hafði hún að mestu horfið úr sviðsljósinu. Hún komst þó nokkrum sinnum í fréttir vegna mála sem tengdust lögreglu, meðal annars vegna vörslu fíkniefna og vegna aksturs á stolnum bíl.
Sjá frétt: Leikkonan Daveigh Chase látin, 35 ára að aldri
Skömmu áður en Chase lést stofnaði kærasti hennar, Roy Hernandez, fjáröflunarsíðu á GoFundMe þar sem hann greindi frá því að hún væri alvarlega veik. Þar lýsti hann henni sem ljósi í lífi sínu og sagði að hún hefði glímt við mikla erfiðleika í einkalífi sínu. Hann sagði jafnframt að læknar hefðu varað við því að hún ætti mögulega stutt eftir ólifað.
New York Post hefur birt sláandi myndir sem voru teknar fyrir nokkrum mánuðum þegar John Ryan, fyrrum umboðsmaður Chase, og stjúpsystir hennar, Gaia Brown, voru að leita að henni, réðu þau meðal annars einkaspæjara. Fengu þau ábendingu um að til væri myndband sem sýndi Chase liggjandi í tjaldi í Skid Row-hverfinu í Los Angeles en það hverfi er frægt sem griðastaður heimilislausra og fólks með fíknivanda. Sýna skjáskot hana vera tágranna liggjandi í tjaldi og með takmarkaða metvitund.
Ryan segir í samtali við New York Post að hann hafi náð í Chase í síma til að reyna að koma henni í meðferð en hún hafi verið horfin þegar hann kom til Skid Row. Hafði hann og Brown verið búin að fá pláss fyrir Chase á meðferðarstöð í Kosta Ríka.
„Við vorum svo nálægt því að finna hana,“ sagði Ryan. „Daveigh var yndisleg, bjartasta ljósið í Hollywood. Ég trúi þessu ekki. Hennar verk munu lifa að eilífu.“
Hann var einnig að leggja drög að heimildarmynd um leitina að henni, sem hefði átt að heita „Finding Lilo“, og að stórir framleiðendur hefðu sýnt verkefninu áhuga. Hann gefur lítið fyrir fjársöfnun Hernandez. „Einhver maður sem segist vera kærastinn hennar sem engir vinir hennar eða fjölskylda hefur heyrt um setur upp GoFundMe fyrir hönd hennar og fjölskyldunnar,“ segir hann. „Ég get staðfest að Daveigh var með reikning sem greiðir allan kostnað.“