Fatahönnuðir framtíðarinnar tengja saman huga og hendur á sumarnámskeiði í Hönnunarsafni Íslands.
Þar hafa Barbie-dúkkur fengið sérhannaða kjóla og sparijakka undanfarna daga.
Á námskeiðinu læra krakkar að hanna og búa til sín eigin föt frá grunni. Og prófa sig áfram með snið og skraut.
Biðlistar hafa verið á öll námskeið sumarsins og margir fara heim með draum um að verða fatahönnuður í framtíðinni.