Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Ban­væn hita­bylgja geng­ur yf­ir Evr­ópu. Á tæpri viku hafa fjör­tíu drukkn­að í Frakklandi, að­al­lega ungt fólk. Þá fund­ust tvö lít­il börn lát­in í bíl fjöl­skyld­unn­ar. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Sebastian Lecornu, lýs­ir hinum látnu sem fórn­ar­lömb­um kreppu sem heim­ur­inn stend­ur frammi fyr­ir.

Síðastliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi. Alls hafa 40 drukknað á síðustu fimm dögum, eða frá 18. júní, á meðan hitabylgja gengur yfir landið. Á meðal hinna látnu er aðallega ungt fólk, segir forsætisráðherrann, Sebastian Lecornu.

Þá fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, látin í bíl fjölskyldunnar í suðausturhluta Frakklands í gær, þegar hitinn var í hámarki, að sögn saksóknara.

Daginn áður létust þrír aldraðir einstaklingar á heimili sínu í Gironde vegna hitans.

Á hjúkrunarheimilinu Pean Nursing Home í París hafa starfsmenn gripið til sérstakra ráðstafana til að vernda íbúana. 

„Það er ekki nóg að setja vatnsglas fyrir framan fólk og segja því að drekka. Það þarf að tryggja að það geri það í raun,“ sagði hjúkrunarforstjórinn Badra Hamadi.

Nýtt hitamet annað árið í röð

Rauð hitaviðvörun nær til 54 héraða á meginlandi Frakklands og hefur áhrif á um 39 milljónir íbúa.

Hitametið í Frakklandi var aftur slegið. Meðaltal dags- og næturhita náði 29,2°C nú í júní og sló fyrra met sem sett var þann 30. júní á síðasta ári.

Samkvæmt veðurstofunni Météo-France var síðastliðin nótt sú heitasta sem mælst hefur í Frakklandi frá árinu 1947. Landsmeðaltal hitamælinga, sem byggir á 30 veðurstöðum víðs vegar um landið, var 21,6°C. Aðeins nokkur ár eru síðan fyrra metið var sett, í júlí 2019. Þá mældist næturhitinn 21,4°C.

Hitabylgjan hefur raskað daglegu lífi og leitt til þess að yfir 1.350 skólum var lokað og lestarferðum hefur verið frestað. Yfirvöld í París hafa varað við því að samgöngukerfið verði undir miklu álagi vegna hitabylgjunnar. „Járnbrautarteinar þola ekki hitastig yfir 50 gráður,“ sagði Valérie Pécresse, forseti héraðsráðs Île-de-France. Hvatti hún fólk til að fresta ferðalögum ef mögulegt væri og vinna heiman frá sér, sérstaklega viðkvæma hópa.

Í suðvesturhluta Frakklands stöðvaði kjarnorkuver einn af kjarnakljúfum sínum vegna þess að kælivatn úr ánni var orðið of heitt og fór yfir öryggismörkin, 28°C.

Forsætisráðherrann boðaði til neyðarfundar í morgun vegna ástandsins.

Fyrstu fórnarlömbin

Lýsti forsætisráðherra Frakklands drukknununum sem „hörmulegri plágu“.

„Þau eru fyrstu fórnarlömb þeirrar kreppu sem við stöndum frammi fyrir“
Sebastian Lecornu
Forsætisráðherra Frakklands

„Nýjustu tölur sem okkur hafa borist sýna 40 dauðsföll frá 18. júní, aðallega á meðal ungs fólks,“ sagði Lecornu á neyðarfundinum. „Þau eru fyrstu fórnarlömb þeirrar kreppu sem við stöndum frammi fyrir.“

Fjöldi þeirra sem hefur drukknað um og eftir helgina er kominn upp í 20, segir íþrótta- og æskulýðsmálaráðherrann, Marina Ferrari, um leið og hún hvetur fólk sem kælir sig niður í vötnum og sjó til að fara varlega.

Loftlagsskjól opnað á Spáni

Á Spáni hófst hitabylgjan á sunnudag og ráðgert er að hún vari að minnsta kosti fram á fimmtudag. Vísindamenn telja Spán vera eitt þeirra Evrópulanda sem eru einna berskjölduðust fyrir áhrifum loftlagsbreytinga. Á síðustu árum hafa hitabylgjur orðið tíðari og erfiðari viðureignar. 

Í gær mældist hiti 40°C eða meira á 101 af 828 veðurstöðum sem spænska veðurstofan AEMET rekur.

Í Madríd, þar sem hitinn fór í 40°C á mánudag, opnaði borgarstjórnin sérstakt „loftslagsskjól“ fyrir heimilislaust fólk og aðra viðkvæma hópa.

Reyndi að finna hvíld frá hitanum 

Veðurstofan í Portúgal telur að þriðjudagurinn verði heitasti dagur hitabylgjunnar þar í landi.

Á Spáni tók gildi hitaviðvörun sem nær yfir nánast allt landið. Hæsta viðvörunarstig gildir á ákveðnum svæðum á suður- og norðurhluta landsins.

Á 30 veðurstöðvum fór hitinn ekki niður fyrir 25°C í nótt, sem þykir undirstrika hversu öflug hitabylgjan er. Við ströndina nálægt Almería í suðurhluta Andalúsíu hefur hitinn ekki farið niður fyrir 30°C þrjár nætur í röð. 

Rauð viðvörun gildir fyrir svæði í kringum borgina Crodoba í suðri, borgina Bilbao í norðri og hluta af héraðinu Cantabria. Spáð er allt að 40°C í skugga á sumum svæðum í Baskalandi við landamærin að Frakklandi, þar sem svo mikill hiti er sjaldgæfur. 

„Ég veit ekki einu sinni hvað hitinn er mikill, en þetta er skelfilegt... og ég er frá Mexíkó“
Clarisa Arismendi
Læknir á Spáni

Í Cordoba reyndi læknirinn Clarisa Arismendi að finna sér stundarhvíld frá hitanum. „Ég er að borða ís því þetta er hræðilegt. Það er eins og hörmung. Ég veit ekki einu sinni hvað hitinn er mikill, en þetta er skelfilegt... og ég er frá Mexíkó,“ sagði hún.

Stór svæði á mið- og norðurhluta Spánar eru undir appelsínugulri viðvörun, en annars staðar er gul viðvörun í gildi á flestum stöðum. Aðeins strandsvæði sleppa við hitaviðvörun. 

Nýtir morgnanna vel 

Í Barcelona, þar sem hitinn hefur hækkað án þess þó að ná þeim öfgum sem sést hafa annars staðar á Spáni, þurfti hinn 76 ára gamli Jose Farre að nýta svalari morgunstundirnar fyrir innkaupaferð.

„Ég er með hjartasjúkdóm, er með sykursýki og finn mjög mikið fyrir þessu,“ sagði hann og útskýrði að hækkandi hitastig hefði gert honum erfiðara fyrir að sofa og jafnvel anda.

„Hitinn hefur hækkað um nokkrar gráður frá því ég var ungur og fram til dagsins í dag. En það sem truflar mann mest er rakinn,“ bætti hann við.

Bann við flugeldum og blysum

Ótti við gróðurelda og önnur slys hefur leitt til takmarkana á hátíðarhöldum í Katalóníu á þriðjudag, sem venjulega eru haldin með flugeldum og varðeldum.

Yfirvöld hafa hvatt fólk til sérstakrar varúðar og bannað er að skjóta upp flugeldum eða kasta logandi hlutum innan 500 metra frá skóglendi.

„Hitinn hefur hækkað um nokkrar gráður frá því ég var ungur og fram til dagsins í dag“
Jose Farre
Eldri borgari á Spáni

Þá hefur íbúum og ferðamönnum verið ráðlagt að halda sig á svölum töðum, takmarka líkamlega áreynslu utandyra, drekka reglulega vatn og gæta sérstaklega að börnum, öldruðum og öðrum viðkvæmum hópum. 

Viðvörunarstigi lýst á Ítalíu

Á Ítalíu hefur heilbrigðisráðuneytið lýst yfir hæsta viðvörunarstigi vegna hita í 15 borgum, þar á meðal Mílanó og Róm. Gert er ráð fyrir að borgunum muni fjölga áður en yfir lýkur.

Á þessum svæðum eru íbúar hvattir til þess að halda sig innandyra yfir heitasta tíma dagsins, borða léttan mat og kæla sig reglulega með köldu vatni.

Vísindamenn vara við því að endurteknar hitabylgjur séu skýr vísbending um hlýnun jarðar og að þær verði tíðari, lengri og harðari á komandi árum.

Fimm létust í Þýskalandi

Í Þýskalandi létust fimm nú um helgina, en þar hefur banaslysum sem eiga sér stað við sund einnig fjölgað.

Tveir menn, 20 og 22 ára, drukknuðu í vötnum í Bæjaralandi og 79 ára gömul kona lést í Eystrasalti. Önnur banvæn sundslys urðu í vötnum í Brandenborg og Norðurrín-Vestfalíu.

Á flugvellinum í Frankfurt þurftu nokkrir farþegar að fá aðhlynningu vegna hitaslags eftir að flugvél þeirra hafði staðið á flughlaðinu í meira en klukkustund fyrir brottför.

Belgía gæti slegið hitamet

Í Belgíu er spáð því að hitabylgjan muni standa yfir í viku, með „hæsta hita sem nokkru sinni hefur mælst“, að sögn veðurfræðingsins David Dehenauw hjá belgísku veðurstofunni.

Sumir skólar hafa stytt skóladaginn niður í hálfan dag.

Sjaldgæf hitaviðvörun í Bretlandi

Aðeins nokkrum vikum eftir að Bretland sló hitamet fyrir maímánuð gaf veðurstofan út hæstu viðvörun fyrir ákveðin svæði á mið- og suðurhluta Englands. Það hefur aðeins einu sinni verið gert áður.

„Við búumst við alvarlegum og víðtækum áhrifum af þessari hitabylgju, með heilsufarslegum afleiðingum fyrir marga, ekki aðeins þá sem venjulega teljast viðkvæmir fyrir hita,“ sagði starfsmaður veðurstofunnar, Mark Sidaway.

Viðvörunin gildir fyrir miðvikudag og fimmtudag og nær meðal annars til London, Birmingham og Bath.

Fjölmargir skólar hafa lokað starfsemi sinni og verða lokaðir næstu daga. „Fæstar byggingar okkar er hægt að kæla nægilega og lítið er um skugga utandyra,“ útskýrði starfsmaður skóla í Buckinghamshire.

„Það er alvarlegt að sjá hitastig sem þetta í Bretlandi í júní“
Stephen Belcher
Vísindamaður í Bretlandi

Járnbrautafyrirtækið Network Rail hvatti farþega til að ferðast aðeins ef brýna nauðsyn bæri til næstu daga. 

Lestarlínan sem tengir norðausturhluta Englands við London gaf jafnvel út ráðleggingu um að fólk skyldi alls ekki ferðast nema nauðsyn bæri til.

Alvarlegt að sjá þetta 

Veðurstofa Bretlands segir líklegt að núverandi júníhitamet Bretlands, 35,6°C frá árinu 1976, verði slegið. Talið er að hitamet gæti fallið strax í dag, þegar hitinn gæti náð 37°C í suðurhluta landsins. Á næstu dögum gæti hitinn farið upp í 40°C í skugga á sumum svæðum, sem væri fordæmalaust svo snemma sumars.

Veðurstofan varaði einnig við svokölluðum „hitabeltisnóttum“, þar sem hitinn helst óvenjuhár alla nóttina.

„Það er alvarlegt að sjá hitastig sem þetta í Bretlandi í júní,“ sagði aðalvísindamaður veðurstofunnar, Stephen Belcher „Loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa gert atburði sem þessa líklegri og öfgakenndari,“ bætti hann við.

Sérfræðingar hafa ítrekað varað bresk stjórnvöld við því að landið sé illa undirbúið fyrir sífellt heitari sumur.

#banvæn #drukknað #evrópu #fjörtíu #hitabylgja


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26800/fjortiu-hafa-drukknad-i-hitabylgjunni-i-frakklandi/

📰 Aðrar fréttir

Aftur stríð í Eþíópíu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Aftur stríð í Eþíópíu - Vísir
Friður hefur ríkt á svæðinu í fjögur ár en þar áður stóðu yfir grimmileg átök milli sömu fylkinga. Undanfarna mánuði hefur spennan aukist mikið aftur ...
Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið - Vísir
Tilkynnt var í maí að hópur sérfræðinga hefði ákveðið að það sem áður var kallað „polycystic ovary syndrome“ yrði hér eftir kallað „polyendocrine meta...
Sauð upp úr á Alþingi þegar Inga varð bálreið eftir harða sókn Guðrúnar - „Væri nær að stíga inn í eiginn skítapott“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sauð upp úr á Alþingi þegar Inga varð bálreið eftir harða sókn Guðrúnar - „Væri nær að stíga inn í eiginn skítapott“
Óhætt er að segja að neistaflug hafi orðið á Alþingi rétt í þessu í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins ...
Ólga út af húsbyggingu Elísabetar Ronaldsdóttur í Vesturbænum - „Ég held að það sé verið að gera fíl úr mýflugu“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Ólga út af húsbyggingu Elísabetar Ronaldsdóttur í Vesturbænum - „Ég held að það sé verið að gera fíl úr mýflugu“
Ólga er meðal nágranna og innan borgarkerfisins út af endurbyggingu húss við Drafnarstíg 3 í Vesturbæ Reykjavíkur. Kvikmyndagerðarkonan Elísabet Ronal...
Stóra lögregluaðgerðin: Sautján voru handteknir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Stóra lögregluaðgerðin: Sautján voru handteknir
Alls voru 17 handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Þetta kemur fram í viðtali mbl.is við Elínu Agnesi Eide Kri...
Vara við skriðuhættu á Vestfjörðum og Ströndum
📅 24.09.2026 👁️ 1
Vara við skriðuhættu á Vestfjörðum og Ströndum
Veðurstofan varar við úrkomu og auknum líkum á skriðuföllum á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Talsverð úrkoma er þar og heldur áfram fram á sunn...
Annað inn­brotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Annað inn­brotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ - Vísir
„Rétt fyrir klukkan sex í morgun þá er brotist inn hjá okkur. Það er maður sem mætir með sleggju og kemst þarna í gegnum rúðuna okkar. Rúðurnar okkar ...
105-year-old investigated over murders at Nazi PoW camp in Germany
📅 24.09.2026 👁️ 1
105-year-old investigated over murders at Nazi PoW camp in Germany
The suspect is alleged to have been an accessory to murder at the Stalag 326 camp, where tens of thousands of Soviet PoWs died.
Komin á bólakaf í haustið
📅 24.09.2026 👁️ 1
Komin á bólakaf í haustið
Veðurfræðingur segir að lægðagangur haustsins sé hafinn. Gular viðvaranir hafa verið í mörgum landshlutum og fleiri eiga eftir að bætast við.„Það hefu...
Sau­tján voru hand­teknir í að­gerðum lög­reglu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sau­tján voru hand­teknir í að­gerðum lög­reglu - Vísir
Rannsóknin snýr að fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Lögregla gerði húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagði hald á fjármuni og fíkniefni. M...
Fá ekki aðgang að Hvíta húsinu þrátt fyrir skipan dómstóls
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fá ekki aðgang að Hvíta húsinu þrátt fyrir skipan dómstóls
Þrátt fyrir bráðabirgðaúrskurð dómstóls um að gefa eigi fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu var þeim ekki hleypt inn í morgun....
White House 'repeatedly violated' court order to restore press access, say CNN, Politico and MS Now
📅 24.09.2026 👁️ 1
White House 'repeatedly violated' court order to restore press access, say CNN, Politico and MS Now
Employees from CNN, Politico and MS Now reported being denied entry, with some having passes confiscated.
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“ Guð­rún Haf­steins­dótt­ir krafði Ingu Sæ­land svara um hver hafi ákveð­ið af­sögn Guð­mund­...
Inga spurð út í Guð­mund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Inga spurð út í Guð­mund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ - Vísir
Málið hefur verið í umræðunni um nokkurt skeið eftir að Guðmundur Ingi greindi frá því að Inga Sæland hefði gert honum að segja af sér ráðherradómi. Í...
Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur - Vísir
Landsmenn hafa eflaust ekki farið varhluta af veðrinu. Gular veðurviðvaranir voru í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Austfjörðum, Suðausturlan...
Fjöldi sjálfs­víga svipaður og fyrri ár - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Fjöldi sjálfs­víga svipaður og fyrri ár - Vísir
Af þeim voru 28 karlmenn og fimmtán konur. Einn var á barnsaldri, undir 18 ára, en flestir, 21 þeirra, á aldrinum 45 til 59 ára. 22 bjuggu á höfuðborg...
Mannúðarkeðjan færist til föstudags vegna veðurs – Páll Óskar leiðir Söng sem sameinar með fjórum kórum
📅 24.09.2026 👁️ 2
Mannúðarkeðjan færist til föstudags vegna veðurs – Páll Óskar leiðir Söng sem sameinar með fjórum kórum
Mannúðarkeðjunni, sem átti að fara fram á Austurvelli í dag, fimmtudaginn 24. september, hefur verið frestað um einn dag vegna veðurs. Samstöðuaðgerði...
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík
📅 24.09.2026 👁️ 1
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að manni sem var á reynslulausn verði gert að fara aftur í fangelsi til að sitja af sér e...
Björn Leví segir Guðmund Inga beittan ofbeldi: „Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það“
📅 24.09.2026 👁️ 2
Björn Leví segir Guðmund Inga beittan ofbeldi: „Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það“
Björn Levi Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, segir að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra Flokks fólksins, hafi verið beittur ofbeldi ...
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum
📅 24.09.2026 👁️ 1
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum
Tvær skriður féllu í Landmannalaugum eftir hádegi. Litlu munaði að önnur skriðan hafnaði á rútu. Hún hefði líklega endað ofan í á segir yfirlandvörður...
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“
📅 24.09.2026 👁️ 2
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi hörðum orðum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og ríkisstjórninni allri í óund...
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“ valkyrjanna
📅 24.09.2026 👁️ 1
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“ valkyrjanna
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi hörðum orðum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og ríkisstjórninni allri í óund...
Björn Leví telur ein­sýnt að Guð­mundur Ingi hafi verið beittur of­beldi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Björn Leví telur ein­sýnt að Guð­mundur Ingi hafi verið beittur of­beldi - Vísir
Guðbjörg var á þeim tíma aðstoðarkona Guðmundar Inga sem telur einsýnt að hann hafi verið stunginn í bakið.  Það rímar hins vegar ekki við upplifun In...
Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast - Vísir
Alls bárust lögreglunni um land allt 1.188 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining á milli skyldra eða tengdra einstaklinga á tímabilinu janúar t...
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum
📅 24.09.2026 👁️ 1
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum
Aðalmeðferð í skaðabótamáli Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra Samherja, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þorsteinn höfðaði má...
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
📅 24.09.2026 👁️ 2
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
Íbúum í Setberginu í Hafnarfirði brá verulega síðdegis í gær þegar lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför í hverfinu og um tíma var báðum ökutækjum ek...
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
📅 24.09.2026 👁️ 2
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
Tékknesk-íslenska tónlistarkonan Marketa Irglová greinir frá síðasta tónlistarverkefninu sem hún og hinn írski Glen Hansard unnu að áður en hann lést ...
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
📅 24.09.2026 👁️ 2
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
Útköll sérsveitar ríkislögreglustjóra hafa sjöfaldast frá 2014 en sveitin er ekki fullmönnuð. Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu ...
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
„Þarna er verið að fjalla um tæplega 60% af okkar rekstrarfjármagni og það náttúrulega segir sig sjálft að þar svona staldra ég við,“ segir hann í sam...
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
Í stuttu máli varðar dómur Hæstaréttar að kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 hafi fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorl...
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
📅 24.09.2026 👁️ 2
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
Nýtt áhættumat frá leyniþjónustu danska hersins gerir ráð fyrir að ógnin frá Rússlandi verði meiri á næstu mánuðum gagnvart NATO og Vesturlöndum. Þett...
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
📅 24.09.2026 👁️ 2
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
Björgunarsveitir frá Stokkseyri og Árborg sinntu útkalli vegna skemmuþaks sem virtist ætla að fjúka af í heilu lagi.Skemman er við bóndabæ austan við ...
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
📅 24.09.2026 👁️ 2
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
Former England striker Andy Carroll reveals he was sexually assaulted in 2021, by a man who has subsequently been jailed for three years.
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
📅 24.09.2026 👁️ 2
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna Fréttin24. september 2026Aðsend grein, Innlent, RÚV, TransmálLeave a Comment Samsett mynd: Fh. Ragnar Bjarnason, Eldur ...
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
📅 24.09.2026 👁️ 2
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
Rúta með rétt um 40 grunnskólabörnum innanborðs fór út af veginum ofarlega á Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun.Í tilkynningu frá L...
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
📅 24.09.2026 👁️ 2
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hef...
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
📅 24.09.2026 👁️ 2
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
Barnastjarnan Julianna Rose Mauriello, sem í mörg ár fór með hlutverk Sollu Stirðu í barnaþáttunum um Latabæ, hefur gerbreytt um stefnu í lífinu. Maur...
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
📅 24.09.2026 👁️ 2
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
RÚV hefur birt skilaboðin sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann var mennta- og barnamálará...
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
„Þetta er að koma fram núna út af því sem hefur gengið á undanfarið, bæði vegna yfirlýsinga Ingu en líka yfirlýsinga frá Ragnari Þór þar sem hann svar...
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
📅 24.09.2026 👁️ 2
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
Cardiff's Principality Stadium will host Anthony Joshua and Tyson Fury's all-British heavyweight fight on 11 December.
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
📅 24.09.2026 👁️ 2
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
Börnin sem voru í rútunni sem ekið var út af veginum á Fagradal í morgun voru grunnskólabörn úr þremur skólum í Múlaþingi. Þau voru á leið á Starfames...
Most cross-Channel migrant small boat arrivals in single day of 2026
📅 24.09.2026 👁️ 1
Most cross-Channel migrant small boat arrivals in single day of 2026
A total of 781 migrants arrive on Wednesday, but the yearly total is below the same point in 2025.
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
📅 24.09.2026 👁️ 2
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð Að­stoð­ar­kona Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar, fyrr­ver­andi barna- og men...
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
Fyrsta alvöru haustlægðin gengur nú yfir landið og hafa fleiri viðvaranir bæst við þær sem gefnar voru út í gær. Veðurfræðingur segir spár hafa gengið...
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mætast...
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
📅 24.09.2026 👁️ 2
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
African elephants use dozens of different medicinal plants to treat themselves and their families when they are sick, research reveals.
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Jeppe Bruus varnarmálaráðherra, Thomas Ahrenkiel yfirmanni leyniþjónustu danska hersins og Michael ...
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 2
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
A new €5.14 million beach surveillance, rescue and assistance service has been launched by Arona Council, bringing longer lifeguard hours, additional ...
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
📅 24.09.2026 👁️ 2
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
The satellite station is used in part to provide internet coverage to neighbouring Ukraine, the government says.
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Austurfrétt greindi fyrst frá. Björgunarsveitir frá ...