Bandaríkjamenn sem voru um borð í hollenska farþegaskipinu Hondius verða ekki endilega settir í sóttkví, segir Jay Bhattacharya, starfandi yfirmaður sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna CDC. Hantaveira greindist um borð í skipinu og þrír létust skömmu eftir að skipið fór frá höfn í Argentínu í apríl.
Hondius kom að Tenerife í morgun og flutningar farþega frá borði hafa staðið í allan dag. 150 voru um borð og eru allir sagðir einkennalausir. Mörg ríki hafa sagt að ríkisborgarar þeirra fari í sóttkví eða einangrun þegar heim er komið. Fjórtán Spánverjar, sem voru þeir fyrstu sem fóru frá borði í morgun, eru til að mynda þegar komnir í einangrun á hersjúkrahúsi í Madríd.
Þetta á hins vegar ekki endilega við um sautján Bandaríkjamenn voru um borð.
Bhattacharya brýndi fyrir bandarísku þjóðinni að vera róleg yfir fregnum af hantaveirunni.
„Þetta er ekki covid,“ sagði hann í viðtali við CNN í dag. Við heimkomu farþeganna yrði ástand þeirra metið og þeir teknir í viðtal, til að ganga úr skugga um hvort þeir hafi umgengist smitaða einstaklinga.
Sé ekki talin hætta á smiti sé þeim frjálst að fara heim en verða þó undir eftirliti til vonar og vara.