Banda­ríkja­maður sagður smygla vopnum og mála­liðum til Súdan - Vísir

Banda­ríkja­maður sagður smygla vopnum og mála­liðum til Súdan - Vísir

Banda­ríkja­maður sagður smygla vopnum og mála­liðum til Súdan - Vísir

Í nýrri skýrslu SÞ, sem hefur ekki verið birt enn en blaðamenn Reuters hafa séð, kemur fram að upplýsingarnar byggi á heimildarmönnum frá Súdan en niðurstöðurnar eru í samræmi við fyrri rannsókn Reuters. Hún benti til þess að flugvélar í eigu Stevens Shaulis, bandarísks fyrrverandi sérsveitarmanns sem rekur málaliðafyrirtæki í Bandaríkjunum, hafi verið notaðar til flutninga fyrir RSF í Súdan, Líbíu og í Sómalíu.

Einni flugvélinni var grandað í maí 2025 en þá voru vígamenn RSF um borð í flugvélinni, samkvæmt Reuters.

Umrædd skýrsla var samin af sérfræðingaráði SÞ um Súdan en það ráð var stofnað af öryggisráðinu og hefur það hlutverk að vakta vopnasölu til Darfur en hún var árið 2004 bönnuð af öryggisráðinu. Skýrslan hefur verið lögð fyrir ráðið til yfirferðar áður en hún verður birt.

Grimmileg borgarastyrjöld

Borgarastyrjöldin í Súdan hófst árið 2023 og hefur einkennst af grimmdarverkum og eymd. Áætlað er að hundruð þúsunda hafi dáið vegna átakanna og hafa þau einnig leitt til hungursneyðar og sjúkdóma. Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað ástandið í Súdan verstu mannúðarkrísu heimsins.

Abdel Fattah Al Burhan, leiðtogi hers Súdan, og Mohamed Hamdan Dagalo, leiðtogi RSF, tóku höndum saman árið 2021 og frömdu valdarán í Súdan. Árið 2023 stóð svo til að innleiða RSF í herinn en Dagalo var mótfallinn því og hófust átök þeirra á milli í kjölfarið.

RSF var lengi með yfirhöndina í átökunum en stjórnarherinn sótti svo verulega á í fyrra og í upphafi þessa árs. Landið skiptist nú að miklu leyti í tvennt, þar sem RSF stjórnar vesturhluta þess og stjórnarherinn austurhlutanum.

Stjórnarhernum hefur áfram vegnað betur en RSF, heilt yfir, á víglínunni í Súdan á undanförnum mánuðum, þrátt fyrir að uppreisnarmennirnir fái mikinn stuðning og þá helst frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Herinn hefur sömuleiðis notið stuðnings annarra ríkja, eins og Rússlands, eftir að yfirvöld þar hættu að styðja RSF.

Sjá einnig: Bjóða Rússum flotastöð við Rauðahafið

Rússar studdu um tíma RSF og á þeim tíma sendu Úkraínumenn sérsveitir til Súdan til aðstoðar stjórnarhernum.

Sjá einnig: Stríðið í Úkraínu háð í Súdan

Átökin hafa komið verulega niður á almenningi í Súdan og hafa þau verið mjög grimmileg. Milljónir hafa lengi staðið frammi fyrir hungursneyð vegna átakanna. Báðar fylkingar hafa verið sakaðar um stríðsglæpi og kynferðisofbeldi er mjög umfangsmikið.

Slökkt á sendum flugvélanna

Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna báru kennsl á þrjár Boeing 727 þotur í eigu fyrirtækis frá Suður-Afríku, sem Shaulis á ásamt viðskiptafélaga. Flugvélarnar sáust allar fyrst í Tjad 2024 og hafa verið gerðar út frá hernaðarsvæði á alþjóðaflugvelli þar síðan þá.

SÞ segja að engar flugferðir hafi verið skráðar hjá flugvélunum eftir að þær sáust fyrst í Tjad í nóvember 2024 og það bendi til þess að reynt hafi verið að fela ferðir þeirra. Blaðamenn Reuters segjast hafa rakið nokkrar ferðir flugvélanna frá Tjad til bækistöðva RSF í Líbíu og í Súdan.

Það var gert með gervihnattamyndum, gögnum úr farsímakerfum og öðrum leiðum, þar sem slökkt hefur verið á sendum flugvélanna sem eiga að senda út staðsetningar þeirra.

Furstadæmin hafa lengi flutt hergögn og menn til RSF í gegnum Tjad og önnur nágrannaríki Súdan, eins og Eþíópíu.

Fregnir hafa borist af því að RSF hafi notað flugvöll í Tjad og hjálparstarf Rauða hálfmánans til að smygla peningum, vopnum og kínverskum drónum til RSF í Súdan.

Sjá einnig: Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan

Þá hafa furstadæmin einnig verið sökuð um að reisa leynilegar herbúðir í Eþíópíu, þar sem mikill fjöldi RSF-liða fékk þjálfun.

Neitaði tengslum við RSF

Áðurnefndur flugvöllur í Tjad er samkvæmt Sameinuðu þjóðunum notaður til að flytja vígamenn, málaliða, hergögn, dróna og annan búnað til RSF. Shaulis svaraði ekki fyrirspurnum fréttaveitunnar um skýrslu Sameinuðu þjóðanna en Craig Munro, viðskiptafélagi hans, sagði fyrirtæki þeirra sem rekur flugvélarnar ekki tengjast RSF á nokkurn hátt og það væri ekki rétt að þeim hefði verið lent í Líbíu, þar sem RSF-liðar hafa ítök.

Forsvarsmenn borgaralegrar flugumferðarstjórnar í Tjad sögðu að umræddar þotur hefðu ekki rekstrarleyfi í Tjad en tóku fram að þeir hefðu ekki yfirsýn yfir hernaðarlega flugumferð.

Abdoulaye Sabre Fadoul, utanríkisráðherra Tjad, sagði að spurningar um flugvélarnar sneru að varnarmálum og væri því ekki hægt að svara þeim. Hann sagði einnig að eina aðkoma yfirvalda í Tjad að átökunum í Súdan væri að reyna að stuðla að friði.

Umsvifamiklir málaliðar um heiminn allan

Kólumbískir málaliðar hafa verið umsvifamiklir í Súdan. Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna segja, samkvæmt Reuters, að fregnir af því að fyrirtæki frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi ráðið um 1.500 til tvö þúsund málaliða frá Kólumbíu til að berjast með RSF-liðum séu trúverðugar.

Uppgjafahermenn frá Kólumbíu hafa lengi starfað sem málaliðar víða um heim. Her Kólumbíu er sá næststærsti í Suður-Ameríku og hefur um árabil barist gegn fíkniefnabarónum og uppreisnarmönnum. Hermennirnir hafa því margir mikla reynslu af átökum.

Um tíu þúsund kólumbískir hermenn hætta hjá hernum á ári hverju og um árabil hafa þeir starfað víða um heim sem málaliðar í nokkuð stórum hópum. Meðal átakasvæða sem málaliðar frá Kólumbíu hafa starfað á á undanförnum árum má nefna Úkraínu, Írak, Jemen, Austur-Kongó og má einnig nefna að það voru kólumbískir málaliðar sem tóku þátt í áhlaupi á heimili Jovenel Moise, fyrrverandi forseta Haítí, þegar hann var myrtur. Þeir sögðust hafa verið plataðir til að taka þátt í áhlaupinu.

Sjá einnig: Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða

Málaliðarnir í Súdan voru ráðnir af fyrirtæki sem heitir Global Security Services Group (GSSG) og er skráð í furstadæmunum. Þeir tilheyra hópi sem kallast „Eyðimerkurúlfarnir“ og er með bækistöðvar í Nyala, í suðvesturhluta Súdan og eru sagðir hafa tekið virkan þátt í umsátrinu um El Fasher sem féll í hendur RSF-liða í fyrra.

Þegar borgin féll eftir um átján mánaða umsátur áttu sér stað þar umfangsmikil ódæði. Þúsundir óbreyttra borgara voru myrtir og sást blóðið á götum borgarinnar á gervihnattamyndum. Konum var nauðgað og börnum rænt en Sameinuðu þjóðirnar hafa sagt að ódæðin séu þjóðernishreinsanir.

Í aðdraganda fallsins benti ýmislegt til þess að umfangsmikil ódæði væru í vændum en viðvaranir um slíkt virðast hafa verið hunsaðar á Vesturlöndum.

Sameinuðu þjóðirnar vöruðu á dögunum við því að ástandið í borginni El Obeid í Súdan væri gífurlega alvarlegt og í takt við aðstæður í El Fasher á sínum tíma. UN Women sögðu frá því að til að nálgast vatn stæðu konur og stúlkur frammi fyrir umfangsmiklu ofbeldi.

Ef þær reyndu að sækja sér vatn á daginn væru gerðar árásir á þær með sjálfsprengidrónum. Ef þær reyndu það að nóttu til, væri þær í hættu á að vera nauðgað.

Samkvæmt áætlunum Sameinuðu þjóðanna voru að minnsta kosti 880 óbreyttir borgarar drepnir með sjálfsprengidrónum á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs.

Fátt um svör

Utanríkisráðuneyti Kólumbíu svaraði ekki fyrirspurnum Reuters. Ríkisstjórn landsins hefur áður beðist afsökunar á veru málaliða þaðan í Súdan. Ekki náðist í fulltrúa „Eyðimerkurúlfanna“ og forsvarsmenn GSSG svöruðu ekki heldur fyrirspurnum blaðamanna fréttaveitunnar.

Talsmaður furstadæmanna hjá Sameinuðu þjóðunum sagði að yfirvöld þar hefðu rannsakað GSSG og komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið tengdist ekki á nokkurn hátt starfsemi málaliða í Súdan.

#bandaríkjamaður #málaliðum #sagður #smygla #vopnum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915279d/bandarikjamadur-sagdur-smygla-vopnum-og-malalidum-til-sudan

📰 Aðrar fréttir

Íslenski kúrekinn sem reyndi að plata ólympíunefndina en endaði í fangelsi
📅 13.09.2026 👁️ 0
Íslenski kúrekinn sem reyndi að plata ólympíunefndina en endaði í fangelsi
Bill Cody Sr. var einn af þeim kúrekum sem gæddu kvikmyndahúsin lífi á þriðja og fjórða áratugnum og var einn af þeim sem lifði af umbreytinguna úr þö...
Daði Már Kristófersson: Ísland eina landið sem ekki hefur verið að nýta sér þetta
📅 13.09.2026 👁️ 0
Daði Már Kristófersson: Ísland eina landið sem ekki hefur verið að nýta sér þetta
Ríkisstjórnin tók við gríðarlegri innviðaskuld eftir síðustu ríkisstjórn og hefur sett aukið fjármagn í vegaframkvæmdir og viðhald. Hún hefur hlotið g...
Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 0
Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr - Vísir
„Núna verður að sýna kortið, ef gestir eru ekki með þau þá þarf að sýna lögleg skilríki, það er ekki lengur hægt að fletta bara upp kennitölu í afgrei...
Varað við kerfisbundnum árásum á járnbrautarkerfi Úkraínu
📅 13.09.2026 👁️ 0
Varað við kerfisbundnum árásum á járnbrautarkerfi Úkraínu
Rússneskum dróna var skotið á farþegalest sem var á leið frá Kyiv til Varsjár í Póllandi í morgun.Lestin var Úkraínumegin við landamærin en aðeins tve...
Móðir pantaði af SHEIN og kúgaðist þegar hún sá hvað datt úr pakkanum
📅 13.09.2026 👁️ 1
Móðir pantaði af SHEIN og kúgaðist þegar hún sá hvað datt úr pakkanum
Breska móðirin Kate Greevy, 42 ára, pantaði nokkrar flíkur frá kínverska netsölurisanum SHEIN fyrir vinkonuferð til Ibiza.Hún ákvað að taka sig upp ta...
Segir valið standa á milli sín eða nýnasista í ríkisstjórn
📅 13.09.2026 👁️ 1
Segir valið standa á milli sín eða nýnasista í ríkisstjórn
Útlit er fyrir að aðeins örfá prósentustig geti ráðið því hvort rauðgræna stjórnarandstöðublokkin sigrar eða hvort núverandi minnihlutastjórn hægriflo...
Sex látnir í ferjuslysi og yfir 100 saknað
📅 13.09.2026 👁️ 1
Sex látnir í ferjuslysi og yfir 100 saknað
Sex eru látnir eftir að ferja lenti í sjávarháska í Jövuhafi í nótt í slæmu veðri og miklum öldugangi.Ferjan var á leið frá borginni Surbaya á eyjunni...
For­sætis­ráðherra um gjald­skrár­hækkanir og ESB-um­sókn - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
For­sætis­ráðherra um gjald­skrár­hækkanir og ESB-um­sókn - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði jafnframt að ríkisstjórnin hafi rætt hvort draga æ...
'Slim chance' government will hit 1.5m new homes target, Rayner tells BBC
📅 13.09.2026 👁️ 1
'Slim chance' government will hit 1.5m new homes target, Rayner tells BBC
High construction costs and the Iran war are threatening the key manifesto pledge, the housing secretary says.
Stöðvuðu bjórkvöld framhaldsskóla í Sykursalnum
📅 13.09.2026 👁️ 1
Stöðvuðu bjórkvöld framhaldsskóla í Sykursalnum
Lögreglan stöðvaði samkvæmi í Sykursalnum í gærkvöld vegna brots á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Þetta segir Heimir Ríkarðsson,...
Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
📅 13.09.2026 👁️ 1
Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu...
Tekur á­rásum á samfélagsmiðlum fagnandi - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Tekur á­rásum á samfélagsmiðlum fagnandi - Vísir
„Jú, á föstudaginn förum við í loftið sem er hvað, 18. september. Þetta hafa verið eitthvað rúmlega 30 þættir á vetri.“ Gísli segir þetta náttúrlega g...
Elizabeth Smart birtir tilfinningaþrungna færslu eftir tap í vaxtarrækt
📅 13.09.2026 👁️ 1
Elizabeth Smart birtir tilfinningaþrungna færslu eftir tap í vaxtarrækt
Elizabeth Smart birti tilfinningaþrungna færslu á samfélagsmiðlum eftir að hafa hafnað í neðsta sæti í vaxtarræktarkeppni. Hún sagðist hafa skemmt sér...
Þurfum að kveikja inni í krökkunum vaxtarhugarfar
📅 13.09.2026 👁️ 2
Þurfum að kveikja inni í krökkunum vaxtarhugarfar
„Ég persónulega trúi því að samræmd próf séu eitt það besta jöfnunartæki sem að til er. Af því að þar ertu með raunverulega, sameiginlega mælieiningu ...
„Ætlunin er ekki að að­laga þá aftur að sam­fé­laginu“ - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
„Ætlunin er ekki að að­laga þá aftur að sam­fé­laginu“ - Vísir
„Í vikunni sem leið var þekktum sakamanni vísað úr landi með 30 ára endurkomubann til Íslands og raunar til allra 29 Schengen ríkjanna,“ skrifar Þorbj...
Vilja öll greiða at­kvæði um að kljúfa sig frá Bret­landi - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Vilja öll greiða at­kvæði um að kljúfa sig frá Bret­landi - Vísir
Telegraph greinir frá þessu en miðillinn segir leiðtoga landanna þriggja ætla að hittast á sögulegum fundi í Cardiff á morgun, mánudag. Nú séu í fyrst...
Krist­rún ræðir málin í Sprengi­sandi - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
Krist­rún ræðir málin í Sprengi­sandi - Vísir
Sömuleiðis verður Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri, í viðtali. Það er ekkert annað land í okkar heimshluta með verðtryggingarkerfi eins og það er á Ís...
Krist­rún ræðir málin á Sprengi­sandi - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 0
Krist­rún ræðir málin á Sprengi­sandi - Vísir
Sömuleiðis verður Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri, í viðtali. Það er ekkert annað land í okkar heimshluta með verðtryggingarkerfi eins og það er á Ís...
Hvað eru varnarefni í matvælum?
📅 13.09.2026 👁️ 1
Hvað eru varnarefni í matvælum?
Heildsalan Bananar inkallaði nýlega Pinkids epli vegna ólöglegs varnarefnis. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem matvara er innkölluð vegna varnarefna.Þó ...
Kaldi og rigning
📅 13.09.2026 👁️ 2
Kaldi og rigning
Lægð nálgast landið úr suðvestri og beinir mildara lofti til landsins, en í nótt frysti víða norðaustantil á landinu.Þá er austan og suðaustan kalda o...
Reform's £72m donations 'entirely in line with law', Jenrick says
📅 13.09.2026 👁️ 1
Reform's £72m donations 'entirely in line with law', Jenrick says
The government is trying to change the law on donations to UK political parties from British expats.
Bandaríkin verji sína hagsmuni, ekki íslenska
📅 13.09.2026 👁️ 1
Bandaríkin verji sína hagsmuni, ekki íslenska
Rasmus Gjedssø Bertelsen er danskur prófessor í norðurslóðafræðum við Norðurslóðaháskólann í Tromsö í Noregi. Þar rannsakar hann og fylgist grannt með...
Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu
📅 13.09.2026 👁️ 1
Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu
Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu Rjúpahæð 3 Glæsilegt tæplega 300 fermetra einbýlishús við Rjúpnahæð 3 í Garðabæ er komið á sölu. Ásett verð e...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Andúð og ofstæki
📅 13.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Andúð og ofstæki
Mynd Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Tromp á hendi Trumps?
📅 13.09.2026 👁️ 2
Tromp á hendi Trumps?
Tromp á hendi Trumps? Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­...
Haustlitadýrð við Þingvallavatn
📅 13.09.2026 👁️ 1
Haustlitadýrð við Þingvallavatn
Náttúran skartaði sínu fegursta nærri Vinaskógi við Þingvallavatn í gær þegar myndatökumaður Ríkissjónvarpsins Arnór Fannar Rúnarsson var þar á ferð.H...
Nætur­frost norðaustantil - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
Nætur­frost norðaustantil - Vísir
Þar segir að búist sé við austan og suðaustan kalda og rigningu í dag. Þá verði strekkingur með suðurströndinni. Hægari vindur verði á Norður- og Aust...
Sam­kvæminu slúttað vegna brots á lögum - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Sam­kvæminu slúttað vegna brots á lögum - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar koma engar frekari upplýsingar fram um málið, nema að það hafi átt sér stað í umdæmi ...
Kærasti grunaður um manndrápstilraun
📅 13.09.2026 👁️ 2
Kærasti grunaður um manndrápstilraun
Kærasti grunaður um manndrápstilraun Landspítalinn í Fossvogi Mynd: Víkingur Maður var í sumar úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um tilraun til ...
Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var hand­tekinn - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var hand­tekinn - Vísir
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum sem var kveðinn upp í lok júlímánaðar, en birtist á vef dómstólanna fyrir skömmu. Málið er...
Fjöldi Jemena á flótta undan stríðsátökum
📅 13.09.2026 👁️ 3
Fjöldi Jemena á flótta undan stríðsátökum
Um 1.400 flúðu frá Jemen til Djibútí á einum sólarhring vegna átaka milli stjórnarhersins í Jemen og uppreisnarsveita Húta. Efnahagsráðuneyti Djibútí ...
Jemenar á flótta undan stríðsátökum
📅 13.09.2026 👁️ 1
Jemenar á flótta undan stríðsátökum
Um 1.400 flúðu frá Jemen til Djibútí á einum sólarhring vegna átaka milli stjórnarhersins í Jemen og uppreisnarsveita Húta. Efnahagsráðuneyti Djibútí ...
Audi chooses Gran Canaria for major international event and vehicle testing
📅 13.09.2026 👁️ 2
Audi chooses Gran Canaria for major international event and vehicle testing
Gran Canaria has become an international showcase for one of the world's biggest car manufacturers, with Audi using the island for a major global conv...
Heat warnings activated across the Canary Islands today as temperatures climb and calima returns
📅 13.09.2026 👁️ 2
Heat warnings activated across the Canary Islands today as temperatures climb and calima returns
The Canary Islands are facing another hot and dusty day today, Sunday 13th September, as temperatures rise again and official health warnings for extr...
Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Ás­kell - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Ás­kell - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Scuba diver dies after getting into difficulty off Tenerife coast
📅 13.09.2026 👁️ 2
Scuba diver dies after getting into difficulty off Tenerife coast
A scuba diver has died after getting into difficulties in the sea off Radazul, in the Tenerife municipality of El Rosario, prompting a major response ...
15 ára dreng bjargað í Bergingshafi
📅 13.09.2026 👁️ 2
15 ára dreng bjargað í Bergingshafi
15 ára dreng var bjargað í Beringshafi úti fyrir ströndum St. Lawrence-eyju í síðustu viku eftir að hafa verið á reki á kili smábáts í tvo sólarhringa...
15 ára dreng bjargað í Beringshafi
📅 13.09.2026 👁️ 1
15 ára dreng bjargað í Beringshafi
15 ára dreng var bjargað í Beringshafi úti fyrir ströndum St. Lawrence-eyju í síðustu viku eftir að hafa verið á reki á kili smábáts í tvo sólarhringa...
PM's top security adviser says Europe faces hard winter to keep pressure on Putin
📅 13.09.2026 👁️ 4
PM's top security adviser says Europe faces hard winter to keep pressure on Putin
In rare public remarks, Jonathan Powell said now was not the time for European nations to take their "foot off the gas".
One dead, 102 rescued from Indonesian ferry that went missing in Java Sea
📅 13.09.2026 👁️ 2
One dead, 102 rescued from Indonesian ferry that went missing in Java Sea
The nation's search and rescue team said it lost contact with the Virgo Transport 8 in the early hours of Sunday morning.
„Óþekkt kona“ hlaut Gullna ljónið
📅 13.09.2026 👁️ 3
„Óþekkt kona“ hlaut Gullna ljónið
Danska kvikmyndin Óþekkt kona (d. Kvinde ukendt) hlaut Gullna ljónið, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, sem veitt voru í gær. Aðalleikkon...
'She's back': Fans dance, sing and cry after Céline Dion's comeback concert in Paris
📅 13.09.2026 👁️ 4
'She's back': Fans dance, sing and cry after Céline Dion's comeback concert in Paris
Thousands turned out to witness Céline Dion perform in Paris on Saturday, her first show after a six year illness-induced hiatus.
Lengsta borðhald í heimi í Búkarest
📅 13.09.2026 👁️ 4
Lengsta borðhald í heimi í Búkarest
Yfir 20.000 gestir mættu á óvenjulegt borðhald í Búkarest í Rúmeníu í gær. Gestirnir sátu við borð sem var 5,055 metra langt og náði frá Unirii-breiðg...
AI staff 'genuinely frightened' for humanity's future, ex-Anthropic researcher tells BBC
📅 13.09.2026 👁️ 4
AI staff 'genuinely frightened' for humanity's future, ex-Anthropic researcher tells BBC
Jacob Coxon tells the BBC that there's a strong chance AI could end humanity if the rate of development is not reined in.
Critics celebrate Céline Dion's 'risky' comeback show in Paris
📅 13.09.2026 👁️ 4
Critics celebrate Céline Dion's 'risky' comeback show in Paris
The iconic Canadian singer kicked off her long-awaited comeback show in Paris on Saturday, after a six-year hiatus due to health issues.
They lost their jobs after posting about Charlie Kirk, but some have no regrets
📅 13.09.2026 👁️ 4
They lost their jobs after posting about Charlie Kirk, but some have no regrets
Some people fired in the wake of Kirk's assassination have won big settlements from employers, others have had to start over from scratch.
Celine Dion með langþráða endurkomu
📅 13.09.2026 👁️ 4
Celine Dion með langþráða endurkomu
Kanadíska söngdívan Celine Dion hélt sína fyrstu tónleika í sex ár í Plenitude Arena í Nanterre, úthverfi Parísar í Frakklandi í kvöld.Hún hóf tónleik...
For­stjórar gervi­greindar­fyrir­tækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun - Vísir
📅 12.09.2026 👁️ 4
For­stjórar gervi­greindar­fyrir­tækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun - Vísir
Dario Amodei, forstjóri og meðstofnandi Anthropic, segir að þróunin sé í dag það hröð að ekki sé hægt að tryggja öryggi á sama tíma. Þetta kemur fram ...
Drag Race co-creator Fenton Bailey speaks out after BBC axe
📅 12.09.2026 👁️ 3
Drag Race co-creator Fenton Bailey speaks out after BBC axe
The BBC is cutting the show because of financial pressures, sparking discussion about LGBTQ+ representation on TV.
Some dentists say more young people are grinding their teeth - are you one of them?
📅 12.09.2026 👁️ 4
Some dentists say more young people are grinding their teeth - are you one of them?
Millions of us do it, though few of us realise we do - but getting the right treatment can be life-changing.