Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að hækka tolla á evrópska bíla í næstu viku. Hann segir Evrópusambandið ekki hafa staðið við tollasamning frá því í fyrra.
Samningurinn, sem var gerður í júlí, kvað á um að tollar á varning Evrópusambandsins yrðu 15% í Bandaríkjunum. Í staðinn átti Evrópusambandið að auka fjárfestingar í Bandaríkjunum.
Viðræður hafa staðið yfir um hvernig frekar eigi að byggja á þessu samkomulagi en þær hafa strandað á deilum um tolla á stáli og áli. Trump sagði á Truth Social í dag að tollar á bíla og flutningabíla frá Evrópusambandinu myndu hækka í 25% í næstu viku þar sem Evrópusambandið hefði ekki staðið við samninginn. Hann tiltók ekki í hverju vanefndirnar fælust.
Tollarnir myndu koma hvað verst niður á Þýskalandi sem flytur út stóran hluta af bílum Evrópusambandslanda. Trump hefur undanfarna daga gagnrýnt Friedrich Merz kanslara Þýskalands fyrir neikvæð afskipti af stríðinu í Íran.
Tollarnir sem Trump tilkynnti um fyrir rúmu ári voru úrskurðaðir ólöglegir af Hæstarétti Bandaríkjanna. Bílatollarnir falla ekki undir þann úrskurð.