Bandaríkin saka Sameinuðu þjóðirnar um að ýta undir „þjóðaskipti“ í hinum vestræna heimi
Bandaríkjastjórn hefur sakað Sameinuðu þjóðirnar um að stuðla að svokölluðum „þjóðaskiptum“ og reyna að koma í veg fyrir að Bretland geti vísað ólöglegum innflytjendum úr landi.
Málið kom fram í yfirlýsingu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu með undirskrift utanríkisráðherrans, Marco Rubio, þar sem staðfest var að Bandaríkin hefðu hafnað því að styðja endurskoðun á alþjóðlegum samningi Sameinuðu þjóðanna um fólksflutninga, Global Compact on Migration (GCM).
AuglýsingSamningurinn er helsta verkefni Sameinuðu þjóðanna um stjórnun fólksflutninga og er framkvæmd hans endurmetin á fjögurra ára fresti.
Í yfirlýsingunni gagnrýnir bandaríska utanríkisráðuneytið harðlega það sem það kallar „tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að auðvelda þjóðaskipti í Bandaríkjunum og vestrænum bandalagsríkjum“.
Saka SÞ um að skipuleggja fólksflæði
Bandarísk stjórnvöld halda því fram að stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafi markvisst hjálpað til við að flytja innflytjendur til Bandaríkjanna og Evrópu þrátt fyrir að kjósendur hafi ítrekað kosið gegn slíkri stefnu.
„Sameinuðu þjóðirnar, í samstarfi við frjáls félagasamtök sem þær fjármagna, komu bjuggu til einskonar umferðaræð í gegnum Mið Ameríku að landamærum Bandaríkjanna,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar segir einnig að meðan bandarískir borgarar hafi glímt við fordæmalausan fjölda innflytjenda hafi fulltrúar Sameinuðu þjóðanna verið á vettvangi og leitt innflytjendur að suðurlandamærum Bandaríkjanna.
Bandaríkin gagnrýna einnig harðlega nýjar tillögur Sameinuðu þjóðanna um að fjölga löglegum leiðum fyrir innflytjendur og auðvelda þeim sem þegar hafa komist til vstrænna ríkja með ólöglegum leiðum að setjast þar að.
ESB gerði nýlega samning við Bangladesh um aukna fólksflutninga
Þessi yfirlýsing, sem hlýtur að teljast sprengja inn í umræðuna, kemur einungis nokkrum dögum eftir að Evrópusambandið tilkynnti um aukið samstarf við Bangladesh um fólksflutninga og vinnuafl til Evrópu. Nýtt samkomulag sem undirritað var í apríl ári felur meðal annars í sér aukinn innflutning á „hæfu vinnuafli“ frá Bangladesh til Evrópuríkja.
ESB hefur sagt markmiðið vera að mæta skorti á vinnuafli í Evrópu en gagnrýnendur benda á að atvinnuleysi í álfunni sé að aukast.
Segja SÞ hafa reynt að stöðva brottvísanir frá Bretlandi
Bandaríkin taka sérstakleg Bretland fyrir í yfirlýsingunni þar sem stjórnin sakar embættismenn Sameinuðu þjóðanna um að hafa reynt að koma í veg fyrir brottvísanir fólks sem komið hefur til Bretlands á smábátum yfir Ermarsund en fyrir nokkrum dögum tilkynnt að fjöldi þeirra sem komið höfðu ólöglega inn í landið á slíkan hátt væri kominn yfir 200.000.
Samkvæmt utanríkisráðuneytinu hafi fulltrúar SÞ beitt þrýstingi á yfirvöld til að stöðva brottvísanir innflytjenda frá Bretlandi.
Bandaríkjamenn kalla þetta skelfilegt brot á fullveldi Bretlands.
„GCM segist styðja örugga fólksflutninga. Fyrir borgara vestrænna ríkja var aldrei neitt öryggi í slíkum fjöldainnflutning á fólki,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Þar er því haldið fram að slíkur fjöldi innflytjenda sem koma á kostnað skattborgara hafi skapað nýjar öryggisógnir, aukið fjárhagslegt álag á öll kerfi og grafið undan samfélagslegri samheldni.
„Bandaríkin munu ekki lögfesta alþjóðlega samninga sem auðvelda fjöldainnflutning til Bandaríkjanna eða annarra vestrænna ríkja.“
Trump vill brottvísanir til upprunaríkja en ekki „þjóðaskipti“
Í lok yfirlýsingarinnar segir að undir stjórn Donald Trump muni bandaríska utanríkisráðuneytið styðja „remigration“, eða endurflutninga fólks úr landi til síns heima, en ekki þjóðaskipti.
Ummælin koma aðeins nokkrum dögum eftir að ný stefna Bandaríkjanna í vörnum gegn hryðjuverkum var birt, þar sem því var haldið fram að Evrópa væri að verða einskonar ræktunarstöð hryðjuverkamanna vegna fjöldainnflytjenda og opinna landamæra, en Sameinuðu Arabísku Furstadæmin Arabía hættu nýlega að gefa styrki til náms í Bretlandi af ótta við innrætingu öfga íslamista þar í landi.
Þar var jafnframt varað við því að Evrópa gæti orðið óþekkjanleg innan tveggja áratuga ef núverandi þróun héldi áfram.
Auglýsing