Banaslys varð í Skorradalsvatni í gær þegar kajakræðari fannst látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Vesturlandi.
„Í gærkvöldi um kvöldmatarleytið var óskað eftir aðstoð lögreglu og björgunaraðila við leit að kajakræðara sem hafði ekki skilað sér til baka,“ segir í tilkynningunni.
Fljótlega eftir að leit hófst fannst kajakræðarinn látinn við fjöruborðið norðan megin í vatninu. Málið er á borði rannsóknardeildar lögreglunnar á Vesturlandi sem veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
„Lögreglan á Vesturlandi biðlar til húseigenda í frístundabyggðum Skorradals um að yfirfara myndefni úr öryggismyndavélum sem snúa að Skorradalsvatni á tímabilinu klukkan 15:30 – 19:00 í gær,“ segir í tilkynningunni.