Það eru rétt um tvær vikur frá því Breiðafjarðarferjan Baldur sinnti síðast reglubundnum siglingum milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar. Mánudaginn 8. júní hóf Baldur að sigla til Vestmannaeyja eftir að önnur af aðalvélum í Herjólfi bilaði. Þessi ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir vestan, af sveitarfélögum, ferðaþjónustunni og fleirum. Þarna hafi tengingin yfir Breiðafjörð verið rofin með skömmum fyrirvara, bókunarstaðan hjá Baldri hafi verið afar góð, enda ferðaþjónustan að fara á fullt fyrir sumarið. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, var nýkomin af fundi með innviðaráðherra þegar Spegillinn náði tali af henni í dag.
„Sveitarfélögin við Breiðafjörð hafa verið að óska eftir fundi með ráðherra alveg síðan að þessi staða kom upp núna rétt eftir mánaðamótin. Nú var glufa í dagskrá ráðherra, þannig að við vorum boðuð til fundar núna bara með frekar stuttum fyrirvara, ég og Jakob Björgvin, bæjarstjóri í Stykkishólmi, svo var hann Kjartan Þór, sem er í forsvari fyrir Reykhólasveit, með okkur á Teams.“
Baldur gríðarlega mikilvægur fyrir Breiðafjörð
Gerður segir að niðurstaða fundarins sé sú að allir séu sammála um það að Baldur sé gríðarlega mikilvægur fyrir Breiðafjörðinn og samfélögin í kringum Breiðafjörð.
„Það sést vel núna hvað Baldur skiptir miklu máli, það eru það margir sem að verða fyrir áhrifum, að mögulega hefur það bara verið vanmetið af hálfu Vegagerðar og ráðuneytis hvaða áhrif þessi ákvörðun myndi hafa á þessi samfélög. Og að sama skapi þá óskum við eftir því við ráðuneytið að þessi ákvörðun sé ekki fordæmisgefandi, þannig að við ættum ekki að eiga von á því að missa Baldur úr ferjusiglingum, bara einfaldlega ef að það verður aukin flutningsþörf til Eyja.“
Hún segir að það þurfi að vera skýrt hvenær Baldu sé tekinn úr siglingum yfir Breiðafjörðinn og hvenær það á ekki við.
„Það er sérstaklega tilgreint í samningnum milli Vegagerðarinnar og Ferjuleiða að Baldur sé varaskip fyrir Herjólf. Og þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða farinn í slipp þá sé Baldur skilgreint varaskip. En það segir jafnframt í sömu klásúlu „meðal annars“ og þetta „meðal annars“ er ansi opið að okkar mati og þarf bara einfaldlega að vera skýrara í samningi hvað „meðal annars“ þýðir, þar sem að samkvæmt okkar skilgreiningu þá er þetta á mjög gráu svæði þar sem að bátarnir sigla samhliða til Eyja.“
Bitnar verulega á ferðaþjónustunni
Gerður segir innviðaráðherra hafa tekið mótbárum þeirra vel og hafi fullan skilning á þeim aðstæðum sem þau séu í.
„Þetta er bara erfið staða sem ráðuneytið og Vegagerðin eru í gagnvart stöðunni í Vestmannaeyjum og þetta er það úrræði sem þeir hafa. Ég held að það séu allir sammála um að þetta er ekki gott úrræði, þetta er vont fyrir alla.“
Hún segir þetta þegar farið að bitna verulega á ferðaþjónustunni fyrir vestan og samfélaginu öllu. Þetta hafi mikil áhrif í Stykkishólmi, í Flatey og bæði á sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum.
„Það er mikið um afbókanir. Það eru bæði afbókanir á gistingu og á afþreyingu og fyrir utan náttúrulega þann vanda sem að ferðaþjónusta og íbúar eru í í Flatey, þar sem það er verið að reyna að leysa ýmis mál sem hafa komið upp, þar sem var einhvern veginn ekki búið að hugsa fyrir.“
Særún ekki gerð fyrir svona starfsemi
Nú siglir ferjan Særún Milli Stykkishólms og Flateyjar á meðan á þessu stendur. Gerður telur hana ekki koma í staðinn fyrir Baldur.
„Það er náttúrulega bara verið að reyna að bjarga því sem bjargað verður og þetta er bara ákveðin redding. Særún er ekki gerð fyrir svona starfsemi, hún er ekki gerð til þess að sigla og flytja mikið magn af vatni til að mynda og farþega. Það er erfitt fyrir farþega til dæmis að komast frá borði og upp á bryggju og ekkert allir sem geta það einfaldlega.“
Þá geti Særún ekki flutt sorp úr Flatey og Reykhólahreppur sé í samtali við Þörungafélagið á Reykhólum að leysa það. Nú er síðan komið í ljós að viðgerðin á Herjólfi tekur lengri tíma en upphaflega var áætlað og Baldur verður því frá í um mánuð til viðbótar. Það segir Gerður vondar fréttir.
„Það er bara mjög slæmt og þetta var mikið högg þegar að við sáum þessar fréttir að það yrði þessi framlenging á, fram í miðjan júlí, og að sama skapi þá erum við auðvitað bara smeyk um að það muni taka ennþá lengri tíma þar sem að við höfum ekki getað treyst neinum tímaáætlunum til þessa.“
Að lokum segir Gerður að ákvörðunin um að taka Baldur úr siglingum sé illa ígrunduð.
„Okkur finnst það og okkur finnst þær oft teknar með mjög stuttum fyrirvara. Áhrifin af ákvörðuninni eru ekki metin, það er ekki rætt við hagsmunaaðila þegar að svona ákvarðanir eru teknar, þannig að það má bara alveg bæta þetta verulega og það má vanda til verka þegar að svona ákvarðanir eru teknar sem hafa áhrif svona víða eins og þessi ákvörðun hefur.“