Samfélag bókaunnenda á samfélagsmiðlum gengur undir nafninu bókatok. Dæmi eru um að umræða þar verði til þess að áratugagamlar bækur rjúki út í bókaverslunum hérlendis.
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, fagnar umræðu um bækur og áhuga á samfélagsmiðlum. Einar Björn Magnússon, bóksali í Skáldu, tekur eftir því að stór hluti af hans kúnnahóp eru að ungt fólk á þrítugs eða fertugsaldri. „Ég held að samfélagsmiðlar hafi bara mjög mikið að segja um það.“
Gátu ekki hætt
Bókaboðið er mánaðarlegur hlaðvarpsþáttur, hluti af hlaðvarpinu Teboðinu. Birta LÍf Ólafsdóttir, annar þáttastjórnenda, segir hugmyndina hafa kviknað þegar vinkona þeirra mælti með vinsælli bók.
„Við vorum búnar að setja okkur markmið að hlusta á fleiri bækur, segir Birta. „Í kjölfarið á því duttum við inn í þetta og bara gátum ekki hætt.“
Stjórnendur taka virkan þátt í umræðu um bækur á samfélagsmiðlum. Sunneva Einarsdóttir, hinn stjórnandi Teboðsins, segir hóp þeirra sem ræða bækur á samfélagsmiðlum hér á landi fara vaxandi: „Þetta er lítið samfélag af fólki á íslandi, finnst mér, en við erum að reyna að koma saman og bara tala um bækur.“
„Við tökum þessar sem er búið að vera að tala mikið um á tiktok og svo erum við að taka fantasíubækur, við höfum verið að taka spæsí bækur, ævisögur, bara allt sem er vinsælt,“ segir Birta.
Oft verða bækur fyrir valinu sem eru á leiðinni á hvíta tjaldið eða skjáinn, eins og Heated Rivalry eða Þessu lýkur hér, bækur sem kveikt hafa í lesendum víða um heim. Bækurnar falla misvel í kramið og Sunneva og Birta hafa ólíkan smekk. „Gott plott er alltaf mikilvægt og ef þetta er spæsí bók þá þarf að vera gott spæs ef það má segja það þannig,“ segir Birta.
Eftirspurn eftir ljúflestrarbókum
En hvað eru spæsí bækur? Á samfélagsmiðlum vísar það til vel kryddaðrar ástarsögu þar sem allt er látið flakka. „Ljúflestrarbækur,“ segir Margrét. „Það er nýtt hugtak sem hefur verið að ryðja sér til rúms hérna og nær yfir breiðara svið en ástarsögur eins og við þekkjum þær.“
Þótt Margrét fagni aukinni umræðu um bækur segir hún ákveðin hættumerki til staðar: „Það sem er kannski vont fyrir íslenska höfunda er að þetta er nánast allt að koma frá útlöndum.“
Hún sjái höfunda bregðast við eftirspurn eftir léttara efni. Æ fleiri hlusta á bækur í streymi frekar en á pappírsformi. Það sé ekki besta viðskiptamódelið fyrir íslenska höfunda þó neytendur hafi tekið nýjungunni fagnandi.
Viðskiptavinir spyrja eftir bókum af samfélagsmiðlum
Og ekki aðeins ljúflestrarbækur fá athygli á samfélagsmiðlum, samkvæmt Einari Birni í Skáldu: „Bókaútgefendur koma oft bara af fjöllum þegar fara að berast pantanir af bókum sem komu út fyrir 20-30 árum.“
I who have never known men eftir Jacqueline Harpman kom fyrst út á frönsku árið 1995 og hefur selst vel upp á síðkastið, svo mjög að Einar hafði selt síðasta eintakið sem var til fyrr um daginn sem fréttastofa kom í heimsókn. Hún á þó ekki roð í eina af bókum ársins á tiktok.
„Það er bókin Yesteryear sem er bara söluhæsta bók sem ég er búinn að vera með í sölu,“ segir Einar. „Hún rennur alltaf út, ég næ ekkert að hafa hana hérna í hillum, hún selst alltaf upp.“