Ljúfir tónar tóku á móti ferðamönnum á þjóðhátíðardaginn þegar þeir gengu landganginn úr frönsku skemmtiferðaskipi niður á Akraneshöfn. Var það í fyrsta skipti sem skemmtiferðaskip kemur í höfnina í fimm ár.
Nafnarnir Gísli Gíslason og Gísli S. Einarsson spiluðu þá á harmonikku. Það er fleira en hljóðfærið og nafnið sem sameinar þá því báðir voru þeir bæjarstjórar á Akranesi. Sá fyrrnefndi ræddi við Morgunblaðið en hann gegndi embættinu í tæp 19 ár. Hann starfaði líka lengi hjá Faxaflóahöfnum og er því öllum hnútum kunnugur á bryggjunni á Skaganum.
„Þetta kom nú upp með stuttum fyrirvara. Skipið ætlaði að fara í Grundarfjörð en kom tilfallandi á Akranes og þá eru góð ráð dýr. Þá var náð í okkur en við erum alltaf snöggir til ef hægt er að gera eitthvert gagn,“ segir Gísli. Stífa norðanátt segir hann vera ástæðuna fyrir stefnubreytingunni.
„Við höfum verið miklir vinir í býsna langa tíð. Og fyrir liðlega tíu árum byrjaði ég að spila á harmonikku eins og Gísli Einars. Við höfum verið að spila í nokkur ár saman og erum alltaf tilbúnir í tóma vitleysu.“
Gísli játar því að harmonikkurnar hafi glatt ferðamennina, líka því að þeir nafnar hafi tekið fyrir frönsk lög en mest af góðum íslenskum lögum. Kátir voru karlar var þar á meðal enda viðeigandi fyrir tilefnið.
Fleiri skip koma á Skagann
„Ég er nú svo sem enn að vinna í ýmsu sem tengist hafnarmálum og hef gaman af því en að öðru leyti þá er ég í Tónlistarskólanum á Akranesi og það er auðvitað mjög mikilvægt verkefni,“ segir Gísli og á þar við harmonikkunámið.
Eins og áður segir er þetta fyrsta skemmtiferðaskipið í höfninni á Akranesi í fimm ár. Það skal þó tekið fram að annað skip kom við árið 2023 en lá þá í Krossvík; þaðan voru farþegar ferjaðir í land.
Bæjarstjórinn fyrrverandi hefur mikla trú á framtíðarmöguleikum hafnarinnar.
„Nú hafa verið unnar endurbætur á höfninni sem eiga að gera skipakomur auðveldari. Og það er auðvitað horft til þess að Akranes geti orðið reglubundinn viðkomustaður skemmtiferðaskipa sem komast í höfnina. Ný bæjarstjórn ætlar að einhenda sér í að skoða hvernig betur megi gera bæinn vænni til heimsókna og ég hef fulla trú á því að henni takist það. Skaginn hefur þann kost að þeir sem hingað koma, og hafa ekki komið áður, eru undrandi á því að hafa ekki komið miklu fyrr á Skagann,“ segir hann.
Að minnsta kosti ein skipakoma er áætluð á Akranesi í sumar að því er kemur fram í samtali Eldars Ástþórssonar markaðsstjóra Faxaflóahafna og Morgunblaðsins. Stefnt er á að skemmtiferðaskipið komi í höfn á Skaganum hinn 14. ágúst. Þá er einnig önnur skipakoma áætluð í ágúst 2027. Eldar segir Akranes vera í sóknarfæri hvað þetta varðar enda bjóði bærinn upp á góða tengingu við Silfurhringinn og fjölmargar náttúruperlur Vesturlands.
Kátir karlar tóku á móti þessum ferðamönnum á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Gísli segir Akranes vera kjörinn stað fyrir skemmtiferðaskip.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.