Ísland bættist í dag í hóp fjögurra annarra ríkja sem undanfarin ár hafa unnið að því að auka öryggi á hafinu í Norður-Atlantshafi. Varnarmálaráðherrar Þýskalands, Kanada, Noregs, Danmerkur og Íslands staðfestu þetta á fundi sem haldinn var í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem nú stendur yfir í Ankara í Tyrklandi.
„Þetta snýst um samstarf ríkja á þessu svæði sem hafa getu og eru að þróa getu enn frekar og eru að vinna saman á þessu svæði sem er orðið svo mikilvægt, líka til að styrkja tengslin vestur yfir Atlantshaf,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra við þetta tilefni.
„Við erum meðal annars að draga fram gistiríkjastuðninginn og hvernig við getum bætt við þetta verkefni.“
Fagnar aðkomu Íslands
Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd þýskra stjórnvalda. Verkefnið kallast á ensku Maritime Security Partnership og var hleypt af stokkunum fyrir nokkrum árum.
„Aðkoma Íslands er mikilvægt skref í þessu verkefni sem hófst með þátttöku Þýskalands, Kanada og Noregs,“ sagði Pistorius í samtali við RÚV.
„Danmörk bættist í hópinn í fyrra og ég er mjög ánægður með að Ísland sé núna komið í þennan hóp; staðsetning Íslands er auðvitað mikilvæg og Íslendingar hafa mikið fram að færa í þessu samhengi.“