Athugasemdir voru gerðar við starfsemi ellefu veitinga- eða skemmtistaða í borginni um helgina þegar lögregla ásamt Skattinum hélt úti eftirliti.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu voru alls tuttugu staðir heimsóttir og gengið var úr skugga um að allt í starfseminni væri lögum samkvæmt, m.a. að öll tilskilin leyfi væru fyrir hendi.
Níu staðir með allt á hreinu
Í tilfelli níu staða var allt til fyrirmyndar og engar athugasemdir gerðar.
Málum sem upp komu við eftirlitið var eftir atvikum vísað til annarra stofnana til frekari meðferðar og eftirlitinu verður haldið áfram.
Var þremur skemmtistöðum lokað á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn í aðgerðunum.