Ástralski utanríkisráðherrann Penny Wong segist vera æfareið og vonsvikin vegna þess að ísraelsk stjórnvöld hyggjast ekki hefja sakamálarannsókn á drápi Lalzawmi „Zomi“ Frankcom, ástralsks starfsmanns hjálparsamtaka og samstarfsfólks hennar á Gaza.
Wong boðaði ísraelska sendiherrann Hillel Newman á sinn fund og tjáði honum hug sinn og bað sendifulltrúa Ástralíu að koma skoðun sinni á framfæri við ísraelsk stjórnvöld.
Wong sagði það sérstaklega særandi og móðgandi fyrir fjölskyldu Frankcom, Ástrali alla og fólk sem sinnir mannúðaraðstoð að Ísraelsher tilkynnti ákvörðun sína á Alþjóðadegi mannúðaraðstoðar.
Frankcom var meðal sjö starfsmanna World Central Kitchen sem létu lífið í árás Ísraelshers á bílalest á Gaza vorið 2024. Dauði þeirra vakti mikla reiði um heim allan og endurvakti háværar kröfur um að öryggi hjálparstarfsfólks á Gaza yrði tryggt.
Forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hefur viðurkennt að hermenn hefðu banað fólkinu fyrir mistök en yfirstjórn hermála tilkynnti í gær að ekkert yrði af sakamálarannsókn.
Sendiherrann Newman sagðist hafa beðið Wong að bera fjölskyldu Frankcom samúðaróskir en ítrekaði að hermenn hefðu hvorki ætlað sér að skaða hana né aðra. Virða beri þá niðurstöðu rannsóknar hersins að glæpur hefði ekki verið framinn.