Í tilkynningu þess efnis á vef bankans segir að vaxtahækkunin komi fyrst og fremst til vegna hækkunar á fjármögnunarkostnaði bankans. Vaxtabreytingar útlána Arion banka taki almennt mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, meðal annars útlánaáhættu.
„Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.“