Ari Edwald nýr stjórnarformaður Orkuveitunnar
Oddviti Miðflokksins tekur við stjórnarformennsku í næst stærsta orkufyrirtæki landsins, eftir tilkynningu Hildar Björnsdóttur.
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, sem er í eigu almennings.
Niðurstaðan var tilkynnt í dag, en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti um tilboð sitt til Ara þegar nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks var tilkynntur í vor.
Varaformaður er Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og fyrrverandi fréttamaður.
Orkuveitan er að 93,5% leyti í eigu Reykjavíkurborgar, en Akraneskaupstaður á 5,5% og Borgarbyggð tæpt prósent. Forstjóri Orkuveitunnar er Sævar Freyr Þráinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Akraness. Það eru sveitarstjórnir eigendanna sem kjósa í stjórn. Orkuveitan er næst stærsta orkufyrirtæki landsins á eftir Landsvirkjun.
Bæði Ari og Sævar hafa verið forstjórar fjölmiðlafyrirtækisins 365, sem var forveri Sýnar.
Ferill í atvinnulífinu
Ari er 62 ára gamall lögfræðingur með MBA-gráðu. Hann var áður meðlimur í Sjálfstæðisflokknum og búsettur í Portúgal, en flutti sig um set og flokk fyrir framboð á vegum Miðflokksins í vor.
Ari var um skeið framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Sem slíkur sagði hann samtökin úr náttúruverndarsamtökunum Landvernd árið 2002. „Samtök atvinnulífsins geta ekki starfað með samtökum sem taka jafn einhliða afstöðu gegn nýtingu orkulinda landsins, eins og fram hefur komið að undanförnu,“ sagði hann þá í yfirlýsingu.
Hann var forstjóri MS frá árinu 2015 og þurfti sem slíkur að svara fyrir samkeppnisbrot félagsins.
Ari fór í tímabundið leyfi frá Ísey útflutningi, dótturfélagi Auðhumlu, eiganda Mjólkursamsölunnar 2022 og var sagt upp störfum í kjölfarið.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði á stefnuskrá sinni að selja kolefnisföngunarfélagið Carbfix og innviðafélagið Ljósleiðarann úr Orkuveitunni.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri greindi frá því í Viðey 27. samhliða kynningu á nýrri borgarstjórn.
„Í síðustu vikur og í viðræðum síðustu daga þá höfum við fengið að kynnast þeim reynslumikla manni sem Ari Edwald er og mér finnst ekki annað hægt en að nýta hans krafta og reynslu í þágu borgarbúa og Reykvíkinga og ég mun gera það að tillögu minni að hann taki við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur,“ sagði Hildur. „Þar eru mörg ærin verkefni sem bíða og hans reynsla og þekking mun nýtast vel á þeim vettvangi.“