Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur var kosin á framhaldsaðalfundi fyrirtækisins í dag.
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn, var kosinn formaður stjórnar líkt og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðaði þegar meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar var kynntur fyrr í sumar.
Með Ara í stjórn sitja Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, sem verður varaformaður, Ásta Dís Óladóttir prófessor, Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akranesi, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir iðnaðarverkfræðingur og Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Sigurður Guðmundsson verður áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar.
Varamenn eru: Magnea Gná Jóhannsdóttir, Brynjar Níelsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Auður Hermannsdóttir, María Sigríður Guðjónsdóttir og Liv Aase Skarstad. Áheyrnarfulltrúi til vara er Ragnhildur Eva Jónsdóttir.