RÚV greindi fyrst frá málinu. Í fyrri fréttum af málinu kom fram að um uppgjör í undirheiminum hafi verið að ræða. Tuttugu til þrjátíu manns hafi þar komið saman og eggvopni og kylfum verið beitt auk þess sem ekið var á mann. Alls voru ellefu manns handteknir í tengslum við rannsókn á málinu.
Í ákærunni kemur fram að einum þeirra sem ákærður er í málinu er gefið að sök að hafa ekið Land Rover-bíl á 26 ára karlmann á mikilli ferð. Öðrum er gefið að sök að hafa barið manninn ítrekað með óþekktu áhaldi og þá er þeim þriðja gefið að sök að hafa stungið manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu sagði í samtali við fréttastofu í vor að brotaþolar í árásinni hefðu verið þrír og hafi einn þeirra dvalið á gjörgæslu í nokkra daga.
Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs var aukinn eftir hópárásina.
Að neðan má sjá sjónvarpsfrétt af málinu frá í vor.